../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-009
Útg.dags.: 10/09/2023
Útgáfa: 9.0
2.02.40 Öndunarfæri - Háls - epiglottitis
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Háls-epiglottitis
Samheiti:
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Barkaloksbólga (epiglottitis) er vegna sýkingar í slímhúðarbeði barkaloksins og svæðinu umhverfis. Bólgan getur orðið svo mikil að loftvegir lokist. Ekki er ráðlegt að taka hálsstrok frá sjúklingum með alvarlegan epiglottitis nema hafa áður tryggt loftflæði (barkaslanga), eða hafa aðstöðu til að opna loftvegi strax aftur, skyldu þeir lokast við áreitið. Nánast allir sjúklingar með sýkingu í barkaloki eru líka með sýkingarvaldinn í blóði og ætti því alltaf að taka blóðræktanir.

    Barkaloksbólga getur orsakast af ýmsum bakteríum, veirum og sveppum. Hvaða sýkingarvaldar eru líklegastir fer eftir aldri og ónæmisástandi sjúklings:
    - Börn: Í áður hraustum börnum er sýkingarvaldurinn oftast baktería. Fyrir tíma bólusetningar barna gegn Haemophilus influenzaeaf hjúpgerð b (Hib) var sú baktería helsti sýkingavaldur barkaloksbólgu hjá börnum, en sést sjaldan í dag og þá helst hjá óbólusettum börnum, en stöku sinnum hjá bólusettum. Aðrar orsakir barkaloksbólgu hjá börnum eru m.a. aðrar hjúpgerðir af H. influenzae (a, f og óhjúpgreinanlegir), Staphylococcus aureusog streptokokkar (þar á meðal Str. pyogenes).
    - Fullorðnir: Hjá fullorðnum hafa ýmsar bakteríur, veirur og sveppir verið bendluð við barkaloksbólgu, en hún getur líka stafað af öðrum orsökum en sýkingu. Blóð- og hálsræktanir eru þó oftast neikvæðar. Fyrir daga Hib bólusetningar hjá börnum var sú baktería einnig algengasti sýkingarvaldurinn hjá fullorðnum, en í dag er það Streptococcus pneumoniae. N. meningitidisog Pasteurella multocidaeru einnig þekktar orsakir.
    - Ónæmisbældir: Hér bætast við, auk ofantaldra, ýmsir aðrir mögulegir sýkingarvaldar, svo sem Pseudomonas aeruginosa, Serratia spp., Enterobacterspp., anaerob flóra og Candidaspp.
    - Orsakir aðrar en sýkingar: Áverkar á epiglottis, s.s. af völdum hita, aðskotahluta eða ætandi efna o.fl.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Lýsing sýnatökuLýsing sýnatöku
      ATHUGIÐ! Ekki er mælt með því að taka strok frá barkaloki nema að aðstæður séu til að gera bráða ástungu á barka, skyldi öndunarvegurinn lokast við áreitið.
      Blóðræktun er hættuminni og getur í mörgum tilfellum leitt í ljós sýkingavaldinn.
      Sé ákveðið að taka strok er bakteríuræktunarpinna strokið eftir bólgna svæðinu á barkalokinu.
      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Greinist líklegur sýkingarvaldur er tegundargreint og gert næmi.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Greinist Haemophilus influenzae af týpu b er næsta víst að þar sé kominn sýkingarvaldurinn. Meiri óvissa er með aðrar bakteríur sem greinast.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Karen C. Carroll og Michael A. Pfaller. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber og fél. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Washington D.C.

      Ritstjórn

      Sandra Berglind Tómasdóttir - sandrabt
      Hjördís Harðardóttir
      Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt
      Sara Björk Southon - sarabso
      Katrín Rún Jóhannsdóttir - katrinrj

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Hjördís Harðardóttir

      Útgefandi

      Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 05/03/2013 hefur verið lesið 4503 sinnum