../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-639
Útg.dags.: 10/26/2023
Útgáfa: 11.0
2.02.20 Skimun - Vancomycin ónæmir enterókokkar (VÓE/VRE)
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Skimun fyrir VÓE
Samheiti: Skimun fyrir VRE (Vancomycin resistant enterococci) , VÓE
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    Við innlögn á Landspítala á að taka sýni hjá:
    • Öllum sem hafa starfað við eða legið á sjúkrahúsum utan Íslands á síðustu 6 mánuðum og leggjast inn á Landspítala. Miðað er við sjúkrahúslegu erlendis sem varir amk. 24 klst.
    • Öllum sem hafa farið í blóðskilun erlendis á síðustu 6 mánuðum.
    • Öllum sem hafa komið hingað til lands sem flóttamenn eða hælisleitendur.

    Sjá einnig leiðbeiningar sýkingavarna
    Öll saursýni frá Landspítala sem fara í Clostridium difficile rannsókn fara einnig í skimun með ræktun (ekki hraðgreining) fyrir vancomycin ónæmum enterókokkum (VÓE/VRE) og breiðvirkum betalaktamösum (ESBL, AmpC og karbapenemasa). Pantaðar rannsóknir ganga þó fyrir og þetta er einungis gert ef nóg er til af sýni. Tilgangurinn er að finna sem fyrst þá sjúklinga sem bera ónæmar bakteríur svo hægt sé að koma í veg fyrir útbreiðslu þeirra. Sjúklingar sem grunaðir eru um Clostridium difficile sýkingu eru yfirleitt með áhættuþætti sem gera þá líklegri til að bera (t.d. sýklalyfjanotkun) og dreifa (niðurgangur) sýklalyfjaónæmum bakteríum.
    Mögulegar viðbótarrannsóknir: Skimun fyrir VÓE getur verið hluti af skimun fyrir öðrum ónæmum bakteríum, s.s. MÓSA og BBL.

    Sjúklingar utan sjúkrahúsa (hjúkrunarheimili, heilsugæslur og sjúklingar á einkastofum): Sjá leiðbeiningar sóttvarnalæknis
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Tvær aðferðir eru notaðar til að greina VRE/VÓE á Sýklafræðideild LSH. Annarsvegar hefðbundin ræktun sem tekur yfirleitt 2-4 sólarhringa og hinsvegar kjarnsýrumögnun sem gefur niðurstöður að jafnaði samdægurs.

    Ræktun
    Sýnum er strokið á ætisskálar með sýklalyfjum sem hindra vöxt næmra baktería og þannig fæst fram vöxtur ónæmra enterókokka. Gerð er frekari tegundagreining á enterókokkum og vancomycin næmi.

    Kjarnsýrumögnun
    Fer fram í tæki (BD Max) sem einangrar, magnar upp og greinir á sjálfvirkan hátt kjarnsýruraðir (vanA/vanB) sem kóða fyrir vancomycin ónæmi hjá enterókokkum.
    Helsta ábending fyrir hraðgreiningu á VRE/VÓE með kjarnsýrumögnun eru sjúklingasýni frá LSH þar sem hröð niðurstaða skiptir máli þegar meta á þörf á einangrun sjúklings við innlögn. Flest þessara sýna koma frá bráðadeildum LSH. Einnig er þörf á hraðgreiningu við fyrstu skimunarhrinu á deild ef óvænt greinist VRE/VÓE hjá inniliggjandi sjúklingi. Einungis endaþarmsstrok fara í hraðgreiningu.

    Rannsóknin er faggild, sjá gæðaskjal: Faggildingarvottorð.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Ílát og áhöldÍlát og áhöld
      Strok frá endaþarmi:
      • "eSwab" bakteríuræktunarpinni með bleiku loki sjá mynd. Sýni verða að berast á þessum pinnum til að hægt sé að framkvæma hraðgreiningu með kjarnsýrumögnun. Einnig má nota mjóan "eSwab" pinna með bláu loki ef þurfa þykir, t.d. hjá nýburum, sjá mynd.
        eSwab bakteríuræktunarpinni með bleiku loki eSwab bakteríuræktunarpinni með bláu loki (t.d. fyrir nýbura)

      Saursýni og þvagsýni (ekki hraðgreining): Þar til gerð glös með utanáskrúfuðu loki. Sjá efnivið til sýnatöku.
      Hide details for Gerð og magn sýnisGerð og magn sýnis
      Skimunarsýni sjúklinga við komu á sjúkrastofnun
      Endaþarmsstrok (saurmengað). Einnig er hægt að taka saursýni (ekki hraðgreining).
      Senda þarf tvo pinna frá sjúkling sé einnig leitað að BBL (breiðvirkum beta laktamösum).

      Viðbótarskimunarsýni ef við á:
        • Þvag ef sjúklingur er með þvaglegg
        • Sár - yfirleitt nóg að taka sýni frá einu sári (t.d. legusár) ef þau eru mörg
        • Eingöngu ef gröftur eða sýkingarmerki við stungustaði frá íhlutum/lækningatækjum sem eru til staðar við komu
      Ofangreind sýni fara í VRE/VÓE ræktun (ekki hraðgreiningu).
      Sjá leiðbeiningar sýkingavarna
      Sjúklingar utan sjúkrahúsa (hjúkrunarheimili, heilsugæslur og sjúklingar á einkastofum): Sjá leiðbeiningar sóttvarnarlæknis: Landlæknisembættið

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

    Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna
    Strok má geyma í stofuhita eða kæli, þvagsýni og hrákasýni skal geyma í kæli. Sýnin má geyma í allt að sólarhring ef töf verður á sendingu.
    Sýni má flytja við stofuhita.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    VRE ræktun:
    Neikvæðri ræktun er oftast svarað eftir 3 sólarhringa, en lengri tíma getur tekið að útiloka grunsamlegar þyrpingar. Jákvæð ræktun tekur að jafnaði þrjá til fjóra daga.
    Jákvæð ræktun svarast: Vancomycin ónæmur Enterokokkur með niðurstöðum næmisprófs.
    Neikvæð ræktun svarast: Enginn vöxtur af vancomycin ónæmum Enterokokkum.
    Sýkingavarnardeild fær tölvupóst ef ræktun er jákvæð.

    Sérfræðingur á vakt hringir í sýkingavarnadeild þegar grunur er um VÓE/VRE.

    VRE hraðgreining með kjarnsýrumögnun:
    Ef sýni berst fyrir hádegi virka daga er niðurstöðum svarað samdægurs. Sýni sem berast eftir það (fram til kl 15) er eftir bestu getu svarað samdægurs. Ef sýni berst fyrir kl.10:00 á laugardögum er niðurstöðum að jafnaði svarað samdægurs. Sýni í hraðgreiningarpróf eru að jafnaði ekki gerð á sunnudögum. Ef brýn þörf er á hraðgreiningarprófi skal hafa samband við vakthafandi lækni á Sýkla-og veirufræðideild, sýklarannsókn. Ef hraðgreiningarpróf er jákvætt er sýnið sett í ræktun til frekari greiningar.
    Neikvætt svar: Skimun fyrir Vancomycin ónæmum Enterokokkum (VRE) - kjarnsýrumögnun/PCR: Neikvæð
    Jákvætt svar: Vancomycin ónæmur Enterokokkur (VRE): Erfðaefni finnst - ónæmisgen vanA. Verður fylgt eftir með ræktun og næmisprófum.

    Ekki er lengur gefið út á svari þegar vanB finnst með hraðgreiningu beint af endaþarmsstroki.
    Erfðaefni vanB finnst í bakteríutegundum öðrum en Enterokokkum og VRE ræktast nánast aldrei frá vanB jákvæðum endaþarmsstrokum (með öðrum orðum vanB jákvætt hraðgreiningarsvar frá endaþarmsstroki er yfirleitt alltaf falskt jákvætt og ekki merki um VRE).

    Túlkun
    Jákvætt svar úr hraðgreiningarprófi (nema vanB) gefur til kynna sýkingu eða sýklun með VRE, sem síðan er staðfest með ræktun. Neikvætt svar útilokar hins vegar ekki hugsanlega sýklun.
    Jákvætt svar úr ræktun staðfestir sýklun eða sýkingu af völdum VRE en neikvætt svar útilokar hins vegar ekki hugsanlega sýklun.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Jorgensen JH, Pfaller MA og fél. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber og fél. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Wasington D.C.
    3. Gold, H. S. 2001 Vancomycin-resistant enterococci: mechanisms and clinical observations. Clin. Infect. Dis. 33:210-219.

      Ritstjórn

      Alda Margrét Hauksdóttir - aldamh
      Ingunn Steingrímsdóttir - ingunnst
      Ólafía Svandís Grétarsdóttir
      Gerður Halla Gísladóttir - gerdurgi
      Kristján Orri Helgason - krisorri
      Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt
      Sara Björk Southon - sarabso
      Katrín Rún Jóhannsdóttir - katrinrj

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Kristján Orri Helgason - krisorri

      Útgefandi

      Sara Björk Southon - sarabso

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 07/04/2013 hefur verið lesið 6967 sinnum