../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rvei-125
Útg.dags.: 10/26/2020
Útgáfa: 10.0
2.02.08.13 Coronaveirur (MERS, SARS og almennar kvefveirur)
      Heiti rannsóknar: Kjarnsýrumögnun (PCR). Hrað-PCR (FilmArray).
      Samheiti: Á íslensku hefur SARS verið nefnt heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu (HABL).
      Pöntun: Beiðni um veirufræðirannsókn eða Rafrænt beiðna- og svarakerfi: Cyberlab innan LSH.
      Verð: Sjá Gjaldskrár

      Ábending
      Grunur um alvarlega öndunarfærasýkingu, einkum ef viðkomandi sjúklingur er að koma frá þeim löndum, þar sem MERS-CoV er að finna.

      Grunnatriði rannsóknar
      PCR prófið er notað til að greina hvort veiran eða erfðaefni hennar er til staðar í sýninu. Þekktar Coronaveirur sem sýkja menn eru öndunarfæraveirurnar:
      • HCoV-OC43
      • HCoV-229E
      • HCoV-NL63
      • HCoV-HKU1
      • SARS-CoV (severe acute respiratory syndrome)
      • MERS-CoV (middle east respiratory syndrome)
      • SARS-CoV-2 (COVID-19)

      Á veiruhluta Sýkla- og veirufræðideildar eru tiltæk PCR próf fyrir þekktu kvefveirunum OC43, 229E, NL63 og HKU1. Einnig eru tiltæk próf fyrir MERS-CoV.
      Sýni þar sem grunur er um MERS verða send utan til staðfestingar.
      Önnur sýni eru send út til greininga ef þurfa þykir.

      Svar
      PCR: 1-2 dagar. Að jafnaði samdægurs á faraldurstímum.

      Ef grunur er um MERS, má reikna með að sýni fái forgangsmeðferð. Ef sýni berst strax í byrjun vinnudags má reikna með að MERS PCR bráðabirgðaniðurstöður liggi fyrir í lok vinnudags.


      Túlkun
      Jákvætt PCR staðfestir sýkingu veirunnar.
      MERS og SARS eru tilkynningaskyldir sjúkdómar.

    Ritstjórn

    Ásta Karen Kristjánsdóttir - astakk
    Arthur Löve
    Ásgeir Erlendur Ásgeirsson
    Brynja Ármannsdóttir - brynjaa
    Guðrún Erna Baldvinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Arthur Löve

    Útgefandi

    Ásta Karen Kristjánsdóttir - astakk

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 08/02/2013 hefur verið lesið 3592 sinnum