../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rvei-083
Útg.dags.: 04/05/2024
Útgáfa: 11.0
2.02.44 Herpes 7 og 8 veirur (HHV-7 og HHV-8)
      Heiti rannsóknar: Kjarnsýrumögnun (PCR). Þessi próf eru ekki gerð hérlendis, enda er eftirspurn hverfandi lítil. Ef þörf er á, er hægt að senda sýni til rannsókna á tilvísunarrannsóknastofu erlendis.
      Samheiti: HHV stendur fyrir human herpes virus. HHV-8 hefur samheitið "Kaposi's sarcoma-associated herpesvirus" (KSHV).
      Pöntun: Beiðni um veirufræðirannsókn eða Rafrænt beiðna- og svarakerfi: Cyberlab innan LSH.
      Verð: Sjá Gjaldskrár

      Ábending:
      Grunur um virka sýkingu af völdum HHV-7 eða HHV-8

      Grunnatriði rannsóknar:
      PCR prófin eru notuð til að greina hvort Herpes 7 eða 8 veirur (HHV-7 eða HHV-8) eða erfðaefni þeirra eru til staðar í sýninu.

      Hide details for SýnatakaSýnataka

      Sérstök tímasetning sýnatöku:
      Ef greina á yfirstandandi sýkingu er heppilegast að taka sýni til veiruleitar sem fyrst eftir byrjun einkenna.

      Gerð og magn sýnis
      • Plasma (EDTA blóð, fjólublár tappi , ≥ 4 ml),
      • Strok úr munni eða koki með veiruleitarpinna.
          Myndaniðurstaða fyrir sigma vcm
      • Vefjasýni: Dauðhreinsað glas
      • Mænuvökvi: Dauðhreinsað glas (nr. 2 eða 3) ≥1 ml
      • Beinmergssýni: EDTA glas fjólublár tappi
      Svar:
      Erfitt er að áætla biðtíma eftir svari, vegna þess að sýnin eru prófuð erlendis. Að jafnaði innan 1-2 vikna.

      Túlkun:
      Sérfræðilæknir veirurannsókna metur þörfina fyrir túlkun niðurstaðna.


    Ritstjórn

    Jana Birta Björnsdóttir - janabbjo
    Máney Sveinsdóttir - maney
    Arthur Löve
    Ásgeir Erlendur Ásgeirsson
    Brynja Ármannsdóttir - brynjaa
    Guðrún Erna Baldvinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Guðrún Svanborg Hauksdóttir - gusvhauk

    Útgefandi

    Máney Sveinsdóttir - maney

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 07/11/2014 hefur verið lesið 2921 sinnum