../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rvei-016
Útg.dags.: 04/15/2024
Útgáfa: 12.0
2.02.30 Hepatitis C (lifrarbólga C)
      Heiti rannsóknar: Mótefnaleit (IgG). Magnmæling með kjarnsýrumögnun (PCR). Arfgerðargreining (týpun, raðgreining).
      Pöntun: Beiðni um veirurannsókn eða Cyberlab innan LSH.
      Verð: Sjá Gjaldskrár

      Ábending:
      • Grunur um nýja eða langvinna sýkingu af völdum lifrarbólguveiru C.
      • Skimun til þess að koma í veg fyrir smit með blóði og blóðhlutum/afurðum.
      • Ef þarf að fylgjast með framvindu sjúkdóms í einstaklingum með bráða eða króníska sýkingu og ef nauðsynlegt er að meta árangur meðferðar (magnmæling).

      Grunnatriði rannsóknar
      Skimað er með ELISA aðferð fyrir mótefnum gegn HCV með hvarfefnum frá Cobas (Roche). Við úrvinnslu vafasvara eru hvarfefni frá Ortho notuð fyrir anti-HCV mælingar. Sýni sem eru jákvæð í skimprófunum eru staðfest í prófi sem inniheldur mótefnavaka frá E2 core svæðinu, ofurbreytilega svæðinu (hypervariable region, HVR), NS3 helikasa svæðinu, NS4A, NS4B og NS5A svæðunum (INNO-LIA HCV Score frá Fujirebio).

      Sérstök tímasetning sýnatöku:
      Ef um stunguslys eða aðra hættu á smiti með blóði og blóðhlutum/afurðum er að ræða, þarf strax að taka sýni til mælinga á lifrarbólgum B og C, og HIV.
      Fyrir viðbrögð við stunguóhöppum, sjá gæðaskjal Stunguóhöpp.

      Gerð og magn sýnis:
      • Mótefnamæling: Heilblóð/sermi rauður tappi með geli (gul miðja) eða án gels , ≥ 4 ml eða EDTA blóð/plasma , ≥ 4 ml.
      • Magnmæling og/eða arfgerðagreining: EDTA blóð , ≥ 9 ml (dugar fyrir báðum prófum)


      Lýsing sýnatöku:
      Þjónustuhandbók Rannsóknarsviðs
      Blóðtaka
      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

      Taflan hér að neðan sýnir viðmiðunarmörk fyrir magnmælingu á lifrarbólguveiru C:
      Niðurstaða mælingar
      Túlkun og svar
      HCV RNA greinist ekki
      Ct gildi fyrir HCV yfir mörkum prófsins eða ekkert Ct gildi fyrir HCV fengið.
      <15 IU/mL
      Reiknaðar IU/ml eru lægri en neðri mörk fyrir magngreiningu prófsins. Svarað út sem: <15 IU/ml. HCV RNA er greinanlegt en undir magnmælingarmörkum.
      ≥ 15 IU/mL og
      ≤100.000.000 IU/mL
      Reiknað gildi meira eða jafnt og 15 IU/ml og minna en eða jafnt og 100.000.000 IU/ml. Svarað út sem: “(talnagildi) IU/ml”
      >100.000.000 IU/mL
      Reiknaðar IU/ml eru yfir efri mörkum fyrir magnmælingu. Svarað út sem “Meira en 100.000.000 HCV RNA IU/ml. Ef óskað er eftir nákvæmari niðurstöðum, er hægt að þynna sýnið með neikvæðu serum eða plasma.


      Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Svar:
      Mótefnaleit: 1-3 virkir dagar. Um helgar eru einnig unnin sýni vegna vessamengunar eða stunguslysa.
      Magnmæling: 1-2 vikur.
      Arfgerðagreining: 1-3 vikur (eftir að niðurstöður magnmælinga liggja fyrir).

      Túlkun:
Sérfræðilæknir veirurannsókna metur þörfina fyrir túlkun niðurstaðna.


    Ritstjórn

    Jana Birta Björnsdóttir - janabbjo
    Máney Sveinsdóttir - maney
    Arthur Löve
    Ásgeir Erlendur Ásgeirsson
    Brynja Ármannsdóttir - brynjaa
    Guðrún Erna Baldvinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Guðrún Svanborg Hauksdóttir - gusvhauk

    Útgefandi

    Máney Sveinsdóttir - maney

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 10/06/2013 hefur verið lesið 15934 sinnum