../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rvei-040
Útg.dags.: 03/22/2024
Útgáfa: 9.0
2.02.70 Moskítóbornar veirur (Chikungunya, Dengue og Zika)

    Heiti rannsóknar: Kjarnsýrumögnun (PCR). Hrað-PCR (FilmArray) (einnig notað til staðfestingar). Mótefnamæling (IgG og IgM) (sent utan).
    Samheiti: Dengue fever kallast beinbrunasótt á íslensku.
    Pöntun: Beiðni um veirurannsókn, eða Rafrænt beiðna- og svarakerfi: Cyberlab innan LSH.
    Verð: Sjá Gjaldskrár.

    Ábending:
    Veikindi eftir nýleg ferðalög til svæða þar sem greinst hafa chikungunya, dengue eða zika veirur. Fyrir rannsókn á West Nile og öðrum skordýrabornum veirum þarf að senda sýni erlendis til greiningar/staðfestingar.
    (Sjá nánar í leiðbeiningum Landlæknis).

    Grunnatriði rannsóknar:
    PCR greinir hvort veiran eða erfðaefni hennar er til staðar í sýninu. Mótefnaleit greinir hvort IgG og IgM mótefni eru til staðar í sýninu.


    Svar:
    PCR svör fyrir chikungunya, dengue og zika veirur eru að jafnaði tilbúin eftir 1-2 virka daga. Staðfest svör (frá tilvísunarrannsóknastofu) og West Nile PCR svör eru að jafnaði komin eftir 1-2 vikur.
    Niðurstöður mótefnamælinga eru að jafnaði komin eftir 1-2 vikur.

    Túlkun:
    Sérfræðilæknar veirurannsókna meta þörfina fyrir túlkun niðurstaðna.


    Ritstjórn

    Jana Birta Björnsdóttir - janabbjo
    Máney Sveinsdóttir - maney
    Arthur Löve
    Ásgeir Erlendur Ásgeirsson
    Brynja Ármannsdóttir - brynjaa
    Guðrún Erna Baldvinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Guðrún Svanborg Hauksdóttir - gusvhauk

    Útgefandi

    Máney Sveinsdóttir - maney

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 12/02/2016 hefur verið lesið 1466 sinnum