../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-013
Útg.dags.: 06/16/2023
Útgáfa: 9.0
2.02.01.01 ACTH-örvunarpróf (Synacthen próf)
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
ACTH-örvunarpróf er framkvæmt við grun um nýrnahettubilun (adrenal insufficiency). Gefið er corticotrophin 1-24 (Synacthen®) í vöðva og viðbrögð nýrnahettanna metin í framhaldinu með því að mæla styrk kortisóls í blóði, 30 og 60 mínútum síðar.
Framkvæmd prófins:
a) Blóð tekið í kortisól mælingu (grunngildi).
b) Gefið er Synacthen, 250 µg, í vöðva.
c) Blóð tekið í kortisól mælingar 30 og 60 mínútum eftir Synacthen gjöfina.
ACTH-örvunarpróf má gera hvenær dags sem er en æskilegt er að það sé gert að morgni.
Sýnataka, sending og geymsla
Sýnataka, sending og geymsla
Gerð og magn sýnis:
Sjá
S-kortisól
.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
Eðlileg svörun við prófinu er að S-kortisól hækki í ≥ 440 nmól/L, 30 og/eða 60 mínútum eftir Synacthen gjöfina.
Niðurstöður
Niðurstöður
Túlkun:
Nái kortisól ekki að rísa í ≥ 440 nmól/L bendir niðurstaðan til þess að um nýrnahettubilun sé að ræða. ACTH styrkur í plasma hjálpar þá til við að greina á milli þess hvort um frumkomna eða afleidda nýrnahettubilun er að ræða (hár ACTH styrkur bendir til frumkominnar nýrnahettubilunar en lágur ACTH styrkur bendir til afleiddrar nýrnahettubilunar).
Heimildir
Heimildir
Laurells klinisk kemi i praktisk medicin, 8:e uppl., Studentlitteratur, 2003.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ingunn Þorsteinsdóttir
Útgefandi
Ingunn Þorsteinsdóttir
Upp »