../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-178
Útg.dags.: 11/24/2022
Útgáfa: 5.0
2.02.20 Munnhol - bakteríur, sveppir
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar:
    Sýni frá munni - almenn ræktun
    Sýni frá munni - svepparæktun
    Strok frá tungu - almenn ræktun
    Strok frá tungu - svepparæktun
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    Bakteríurannsókn. Bakteríurannsókn frá munnholi er helst gerð til að greina Vincent's anginu, sjá viðeigandi skjal Rsýk-632.
    Svepparannsókn. Grunur um sveppasýkingu í munnholi af völdum Candida gersveppa. Sýkingar sjást helst hjá nýburum, ónæmisbældum sjúklingum og einstaklingum með gervitanngóma, en geta einnig fylgt sýklalyfjanotkun og sykursýki. Þrjár algengustu gerðir sýkingar eru : i) þruska, þ.e. hvítar skánir á öllum slímhúðum munnhols og á tungu, særindi og sviði ; ii) rauðar slímhúðir, sérstaklega í gómi og á tungu, særindi og sviði ; iii) munnvikabólga, með roða, særindum og sprungum í munnvikum.
    Hide details for Grunnatriði rannsóknar
Grunnatriði rannsóknar

    Bakteríurannsókn. Sjá skjal um Vincent's anginu.
    Svepparannsókn. Sýni er sáð á Sabouraud Dextrose agar með Chloramphenicoli (SABC) í 7 daga. Gersveppir vaxa venjulega á 24 - 48 klst.

    Hide details for FaggildingFaggilding
    Sjá yfirlit yfir faggildar/ófaggildar rannsóknir á Sýkla- og veirufræðideild hér.
    Hide details for SýnatakaSýnataka

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Bakteríurannsókn. Sjá skjal um Vincent's anginu.
      Svepparannsókn. Neikvæð svör fást eftir eina viku. Jákvæð svör geta borist fyrr.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Bakteríurannsókn. Sjá skjal um Vincent's anginu.
      Svepparannsókn. Þar sem gersveppir finnast í munnholi 25 - 50% heilbrigðra einstaklinga er jákvæð sýklarannsókn ekki alltaf merki um sveppasýkingu. Þegar um bólfestu er að ræða ræktast venjulega ekki nema nokkrar Candida þyrpingar. Meta þarf niðurstöður rannsóknar með tilliti til undirliggjandi ástands sjúklings og einkenna frá munnholi. Þegar dæmigerð einkenni eru til staðar (sjá ofar) og sveppir vaxa í nokkru magni er sveppasýking talin staðfest.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Jorgensen JH, Pfaller MA og fél. Manual of Clinical Microbiology.
    2. Amy L. Leber og fél. Clinical Microbiology Procedures Handbook.

    Ritstjórn

    Una Þóra Ágústsdóttir - unat
    Ingibjörg Hilmarsdóttir
    Hjördís Harðardóttir
    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho
    Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt
    Sara Björk Southon - sarabso

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Ingibjörg Hilmarsdóttir
    Hjördís Harðardóttir

    Útgefandi

    Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 05/03/2013 hefur verið lesið 1038 sinnum