../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-185
Útg.dags.: 11/01/2021
Útgáfa: 7.0
2.02.23 Smásjárskoðun - neðri öndunarfæri - sýruföst litun
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Auramin Rhodamin - flúrlitun sýrufastra baktería
Samheiti: Berklalitun, litun fyrir sýruföstum stöfum
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    Greina hvort sýrufastir stafi sjáist í sýnum við grun um sýkingu af völdum mýkóbaktería.
    Fylgjast með útskilnaði á sýruföstum stöfum í öndunarfærasýnum hjá sjúklingum sem eru byrjaðir á meðferð við sýkingu af völdum M. tuberculosis.

    Mögulegar viðbótarrannsóknir: Ræktun mýkóbaktería.
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Sýni er skilið niður og botnfall er smásjárskoðað eftir sýrufasta litun með Auramin Rhodamin flúrlit.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Lýsing sýnatökuLýsing sýnatöku
      Mælt með að taka hráka að morgni eða eftir öndunaræfingar, gjarna með hjálp sjúkraþjálfara. Mikilvægt er að senda hráka sem kemur upp frá neðri öndunarfærunum, ekki munnvatn. Uppgangi er hóstað beint í sýnaglasið. Vegna smithættu er æskilegt að taka sýnið utandyra eða í vel loftræstu herbergi.
      Barkasog og - burstun
      Slöngu er rennt niður barkaslöngu/rennu sjúklinga sem eru í öndunarvél og sýni sogað upp. Það sem sogast er sett í samskonar glas og hrákasýni. Berkjubursta skal skola í 1 ml af ísótónísku saltvatni
      Berkjuskol
      Við berkjuspeglun er örlitlu vatni dælt niður í berkjurnar og það síðan sogað upp aftur og sent til ræktunar. Mikilvægt er að berkjuspeglunartæki séu hreinsuð vel til að forðast mögulega krossmengun frá fyrri sjúklingi. Tækið skal ekki hreinsa með kranavatni, það getur innihaldið mýkóbakteríur sem lifa í ytra umhverfi.

      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Niðurstöður úr smásjárskoðun liggja að jafnaði fyrir eftir einn til tvo virka daga.
      Svörun jákvæðrar smásjárskoðunar er í plúsum frá +/- upp í +++.
      Þegar sýrufastir stafir sjást í sýni er meðferðaraðili látinn vita.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Næmi smásjárskoðunar er 22 til 81% samanborið við ræktun mýkóbaktería. Til þess að bakterían sjáist við smájásrskoðun þurfa að vera um 5000 til 10.000 stafir í hverjum ml. af hráka. Sé um að tæða M. tuberculosis telst sjúklingur vera með smitandi berkla.
      Sértækni smásjárskoðunar er >99% fyrir Mycobacteriumættkvíslina; örfáar aðrar bakteríur eru einnig sýrufastar s.s. Nocardia og Rhodococcus. Ekki er hægt að greina ættkvísl né tegund í smásjárskoðun og er því aðeins tilgreint hvort sýrufastir stafir hafi sést eða ekki. Litunin greinir bæði lifandi og dauðar mýkóbakteríur og hefur smásjárskoðun takmarkað gildi við eftirlit með árangri meðferðar, þar sem dauðir sýrufastir stafir geta fundist í sýnum í nokkra mánuði eftir upphaf meðferðar.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Wasington D.C.

    Ritstjórn

    Ólafía Svandís Grétarsdóttir
    Una Þóra Ágústsdóttir - unat
    Guðrún Svanborg Hauksdóttir
    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Guðrún Svanborg Hauksdóttir

    Útgefandi

    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 04/29/2010 hefur verið lesið 40159 sinnum