../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-150
Útg.dags.: 12/22/2022
Útgáfa: 13.0
2.03 Blóðræktun-fullorðnir
    Hide details for Efni og áhöldEfni og áhöld
    • Klórhexidínspritt: 2% chlorhexidine gluconate í 70% isopropyl alcohol (hreinsar og sótthreinsar samtímis) EÐA
    • 70% alkohól ef frábendingar fyrir klórhexidíni
    • Hreinir hanskar. Sumir vilja nota steríla hanska við töku blóðræktana og jafnvel sterílt stykki
    • Blóðtökusett:
      • Stasi
      • Túffur/bómullarhnoðrar
      • Nálar (gjarnan Butterfly, 21G), eins og við eiga hverju sinni, eftir því hvort taka á sýni beint í flöskur með öryggishulsu (millistykki) eða draga fyrst upp í sprautu og síðan í flöskur
      • 2-3 20 ml sprautur (ef ekki er tappað beint á flöskur)
      • Öryggishulsa/millistykki fyrir blóðræktunarflöskur
      • Plástur
      • Saltvatn, 0,9% og nýr dauðhreinsaður tappi á CVK ef blóðtaka úr æðalegg
      • Ílát fyrir oddhvassa hluti
      • Sýnatökuílát:
        Bakteríuræktun og svepparæktun
        A. Blóðræktunaræti
        BacT/Alert FA PLUS flaska, aerob (græn) til greiningar á loftháðum örverum (bakteríum eða sveppum) og valbundnum loftfælum og BacTAlert FN PLUS flaska, anaerob (appelsínugul) til greiningar á loftfælnum örverum. Hvor flaska tekur allt að 10 ml blóðs. 2 sett.
        B. Blóðræktunaræti sérstaklega ætlað fyrir lítið magn sýnis, s.s. frá ungum börnum, lið- eða mænuvökva:
        BacT/Alert PF PLUS flaska, aerob (gul) til greiningar á loftháðum örverum (bakteríum eða sveppum) og valbundnum loftfælum. Tekur allt að 4 ml blóðs.

        Ónotaðar BacT/Alert flöskur eru geymdar við stofuhita.

        Mýkóbakteríuræktun
        Blóðsýni er dregið í 9-10 ml glas með heparíni (ATH. ekki nota EDTA). Verja þarf sýni fyrir ljósi, þar sem Mýkóbakteríur eru næmar fyrir útfjólubláum geislum.
        Blóðmergur er dreginn í 4-5 ml glas með heparíni (ATH. ekki nota EDTA) og varinn fyrir ljósi sbr. hér að ofan.
        Sjá efnivið til sýnatöku í skjali um útfyllingu beiðni, merkingu,frágang og sendingu sýna
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
    Sérstök tímasetning sýnatöku: Sjá Blóð - bakteríur, sveppir, mýkóbakteríur
    Gerð og magn sýnis: Sjá Blóð - bakteríur, sveppir, mýkóbakteríur

    Merking sýna
    1. Flöskur eru formerktar með rúmmálsmerkingum (5 ml milli strika)
    2. Flöskur eru merktar með nafni sjúklings og kennitölu, sýnatökustað og dags- og tímasetningu sýnatöku. Ef notaðir eru límmiðar gætið þess þá að skilja eftir lesanlegan hluta af strikamerki flösku og að líma ekki yfir flipa með strikamerki né yfir fyrningardagsetningu flösku.
    3. Tilgreint er hvort blóð er úr æðalegg (miðbláæða- eða slagæða-) eða útlægri bláæð.
    4. Hlífðarhattur ("flip-top") er fjarlægður af flöskum og gúmmítappi sótthreinsaður vandlega með 70% alkóhóli. Látið þorna alveg (30-60 sekúndur).

    Auðkenni sjúklings
    Til að tryggja að sýni sé tekið úr réttum einstaklingi er sjúklingur spurður um nafn og kennitölu og það borið saman við persónuauðkenni á beiðni og límmiðum. Ef sjúklingur er ófær um að veita þessar upplýsingar sjálfur er auðkenni staðfest af hjúkrunarfræðingi, lækni, aðstandanda eða af auðkennisarmbandi.
    Undirbúningur sýnatökustaðar
    1. Handhreinsun.
    2. Stasi er settur u.þ.b. 10 cm ofan við líklegt stungusvæði og þreifað eftir góðri æð til að stinga á. Losað um stasann.
    3. Farið er í hreina hanska.
    4. Stungusvæðið er hreinsað vandlega með því að strjúka þétt fram og til baka yfir svæðið í 30 sekúndur með 2% klórhexidínspritti, eða 70% alkóhóli.
    5. Látið þorna í a.m.k. hálfa mínútu.
    6. Stasi er hertur aftur.
    7. Ef nauðsynlegt er að þreifa aftur eftir æð þegar búið er að sótthreinsa húð er sótthreinsað aftur.

    Sýnið tekið úr útlægri bláæð
    1. Millistykki/öryggishulsa er notuð til að draga úr líkum á mengun og fyrirbyggja stunguóhapp. ATH.: Notkun öryggishulsu getur torveldað sýnatöku. Bæði þrengir hulsan svigrúm/horn til æðarástungu og eins, þar eð lofttæmið í flöskum er ekki nákvæmt/staðlað, er ekki hægt að stjórna lengd eða krafti flæðis inn í flösku. Því er ekki öruggt að æskilegt magn sýnis náist og einnig geta viðkvæmar æðar, eins og hjá eldri einstaklingum eða sjúklingum á langvarandi krabbameinslyfjameðferð, fallið saman ef sogið verður of kröftugt. Því getur verið vænlegra að nota annað hvort Butterfly með öryggishulsu, eða venjulegt Butterfly eða uppdráttarnál til að draga sýnið (20 ml) fyrst upp í sprautu og dæla því síðan yfir í blóðræktunarflöskur (10 ml í hvora).
    2. Nál er stungið í æð og blóð tekið beint í viðeigandi sýnaglös (ef berklaræktun) eða blóðræktunarflösku(r).
    3. Notuð er ný nál fyrir hverja nýja æðaástungu, ef sú fyrri heppnaðist ekki.
    4. Hugað er vel að smitgát og hæfilegt magn af blóði sett í hverja ræktunarflösku.
      1. Ef blóð er dregið beint á flöskur (með millistykki/öryggishulsu):
        • Er flösku haldið lægra en æðaástungunál til að forðast bakflæði inn í æð.
        • Er fyrst fyllt á aerob flösku (græn, fyrir loftháðar örverur/valbundnar loffælur) og síðan anaerob (appelsínugul, fyrir loftfælur), svo að loft úr nál fari ekki í anaerob flösku.
      2. Ef blóð er fyrst dregið upp í sprautu og síðan dælt í flöskur (án millistykkis/öryggishulsu):
        • Er ekki skipt um nál á sprautu áður en fyllt er á flöskur. Ávinningurinn af því að gera það réttlætir ekki hina auknu áhættu á stunguóhöppum, sem fylgir.
        • Er nál lofttæmd og stungið í flösku fyrir loftfirrða ræktun (appelsínugul) og allt að 10 ml sprautað í hana. Mikilvægt að ekki komi loft með í flösku. Nál dregin upp og stungið í flösku fyrir loftháða ræktun (græn) og allt að 10 ml sprautað í hana.
    5. Nálum er fargað í nálabox.
    6. Flöskum er hvolft nokkrum sinnum til að blanda blóði og æti vel og koma í veg fyrir að blóðið storkni.

    Sýni tekið úr æðalegg
    Á einungis við ef grunur er um sýkingu tengda leggnum (eða ef ekki næst blóð úr útlægri bláæð). Sjá nánar: Blóð - bakteríur, sveppir, mýkóbakteríur.
    Forðast er að draga blóð úr æðalegg ef liðin er < 1 klst. frá því hann var notaður til sýklalyfjagjafar.
    1. Flöskur eru merktar og sótthreinsaðar eins og lýst er hér að ofan.
    2. Sýni er tekið frá einni rás/lumeni. Óþarft að tilgreina frá hvaða rás/lumeni (hefur enga klíníska þýðingu).
    3. Lokað er fyrir vökvarennsli og slökkt á vökvadælu ef sjúklingur er að fá vökva í æðalegginn.
    4. Handhreinsun fyrir alla snertingu við stungustað og æðalegg.
    5. Farið er í hreina hanska.
    6. Samskeyti og leggurinn næst þeim eru sótthreinsuð með 2% klórhexidínspritti. Látið þorna.
    7. Áður en samskeyti eru rofin er þess ávallt gætt að kerfið sé lokað, þannig að ekki komist loft inn í æðakerfið.
    8. Vökvasett eða tappi af æðalegg eru losuð. Leggurinn er tengdur við öryggishulsu m/nál, eða einnota dauðhreinsaða sprautu og blóðið úr leggnum dregið. Ef notuð er öryggishulsa er notað venjulegt blóðsýnatökuglas til að ná blóðinu úr leggnum. Þegar blóð er dregið úr miðbláæðalegg til blóðræktunar þá á ekkihenda fyrsta blóðinu sem dregið er úr leggnum nema ef grunur er um að sýklalyf eða sýklahemjandi efni (td. citrate) sé í portinu eða leggnum, þá á að henda fyrstu millilítrunum (t.d. 3 ml hjá fullorðnum).
      1. Ef notuð er öryggishulsa: Er fyllt beint á blóðræktunarflöskur, fyrst aerob/loftháða ræktun (græn) síðan anaerob/loftfirrða ræktun (appelsínugul). Mikilvægt að ekki komi loft með í anaerob flösku.
      2. Ef ekki er notuð öryggishulsa: Er ný, einnota, dauðhreinsuð sprauta tengd við æðalegginn og blóð dregið til ræktunar, 20 ml (10 ml í hvora flösku).
    9. Samskeyti eru sprittuð. Samskeyti, öryggishulsa/sprauta aftengd og æðaleggur skolaður með 10 ml af 0,9% saltvatni (sodium chloride).
    10. Æðalegg er lokað með nýjum dauðhreinsuðum tappa eða hann tengdur við vökvasett.
    11. Blóðræktunarflöskur eru fylltar hæfilega. Nál sett á odd sprautu, hún lofttæmd og fyllt fyrst á anaerob/loftfirrða ræktun, síðan aerob), (allt að 10 ml á BacT/Alert FA (aer) og BacT/Alert FN (an) flöskur), allt að 4 ml ef BacT/Alert PF).
    12. Flöskum er hvolft nokkrum sinnum til að blanda blóði og æti vel saman og koma í veg fyrir að blóðið storkni.
    13. Nálum er fargað í til þess gerð ílát.
    14. Sýni eru send sem fyrst á Sýkla- og veirufræðideild ásamt útfylltri beiðni. Óþarfi er að kalla út lífeindafræðing um miðja nótt, en þá eru flöskur geymdar við stofuhita til morguns og sendar strax klukkan 8.
      Mýkóbakteríuræktun. Verja þarf sýni fyrir ljósi, þar sem mýkóbakteríur eru næmar fyrir útfjólubláum geislum.
      Geymist við 35-37°C fram að sendingu á Sýkla- og veirufræðideild.
    Frágangur
    Fylgt er leiðbeiningum um örugga losun sýnatökuefna og áhalda
    Fylgt er leiðbeiningum um útfyllingu beiðna, merkingu, frágang og sendingu sýna.
    Farið er úr hönskum og hendur hreinsaðar.
    Fylgt er leiðbeiningum um geymslu og meðhöndlun sýna - sjá þjónustuhandbók og eftirfarandi skjöl:
    Blóð - bakteríur, sveppir, mýkóbakteríur

Ritstjórn

Gunnhildur Ingólfsdóttir
Eva Mjöll Arnardóttir - evama
Kristján Orri Helgason - krisorri
Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Kristján Orri Helgason - krisorri

Útgefandi

Gunnhildur Ingólfsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 06/06/2012 hefur verið lesið 10153 sinnum