../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-176
Útg.dags.: 05/13/2024
Útgáfa: 8.0
2.01.04.01 Beiðni um jáeindarannsókn
    • Boðið er upp á rannsóknir með FDG, PSMA og Flutemetamol. Þegar rannsóknir með nýjum merkiefnum verða í boði verður það kynnt sérstaklega.
    • Sjúklingar með krabbamein og eitil-/blóðmein eru í forgangi. Beiðni um rannsókn skal rædd á samráðsfundum krabbameina og blóðlækninga. Beiðnir vegna heilabilunar skulu fara í gegnum öldrunarlækna Landspítala.
    • Ábendingar fyrir jáeindarannsóknum eru samkvæmt alþjóðlegum leiðbeiningum. (RCR, EANM, SNMMI, NCCN), sjá einnig lista röntgendeildar, ábending fyrir beiðni um Jáeindarannsókn.
    • Í beiðni þurfa að vera nægilegar upplýsingar sem sýna fram á læknisfræðilega nauðsyn rannsóknar, að lágmarki (vinnu-) greining og sértækar spurningar sem óskað er svara við. Vísa á til samráðsfunda krabbameina og blóðlækninga og klíniskra leiðbeininga eftir því sem við á.
    • Pöntun rannsóknar
    • Gátlisti fyrir rannsókn

    Á beiðni þarf að koma fram:
        • Þyngd
        • Þekkt ofnæmi fyrir joð-skuggaefni, yfirleitt er einnig gerð TS rannsókn með skuggaefni.
        • Kreatínin gildi og nýrnastarfsemi
        • Sjúkdómar eins og bólgusjúkdómar
        • Sykursýki týpa I eða II ef við á
        • Krabbameinslyfjameðferð og/eða geislameðferð tveimur vikum fyrir rannsókn
        • Ef við á aðgerð eða vefjasýni 6 vikum fyrir rannsókn
Ritstjórn

Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
Alda Steingrímsdóttir
Arnar Þórisson - arnartho
Pétur Hannesson

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Arnar Þórisson - arnartho

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 08/23/2018 hefur verið lesið 829 sinnum