../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: LSH-864
Útg.dags.: 11/04/2019
Útgáfa: 2.0
1.06.01 Saga - stofnun og virkni eyðublaðs
    Hide details for TilgangurTilgangur
    Að lýsa stofnun og virkni eyðublaðs í Sögu.
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
    Staðsetning eyðublaðs
    • Þegar eyðublaðaeining er opnuð sést samskiptatré, en þar er eyðublöðum raðað eftir lotum, þjónustuflokkum og samskiptum.
    • Eyðublaðið er stofnað á réttum stað í samskiptatrénu, þ.e. í þeim samskiptum sem valin eru hverju sinni.
    • Ef færa þarf eyðublaðið á milli samskipta er það gert með því að draga það með músinni á réttan stað (drag and drop).

    Stofnun eyðublaðs
    Eyðublað er stofnað með eftirfarandi leiðum:
    1. Notuð hnappastika
    2. Ýtt á hnapp hægra megin við eyðublaðaglugga
    3. Í fellivallista "Eyðublöð - Nýtt blað"
    4. Með flýtileið "Ctrl + N"
    5. Valið úr flýtihnöppum hafi þeir verið virkjaðir

    Aðgerðir í eyðublaði
    Reitir í eyðublöðum hafa mismunandi virkni.
    • Við stofnun eyðublaðs birtast persónuupplýsingar sjálfkrafa. Uppfæra þarf persónuupplýsingar við stofnun nýrrar lotu, ekki sjaldnar en á sex mánaða fresti við endurteknar komur innan lotu og jafnóðum og breytingar verða á persónuhögum.
    • Undirskrift birtist sjálfkrafa samkvæmt sniðmáti samskipta.
    • Kóðuð svæði sækja staðlaðan texta sem ekki er hægt að breyta. Kóðunarkerfi eru uppfærð reglulega.
    • Í textareit er hægt að nota flýtitexta og gera villuleit. Microsoft Word þarf að vera uppsett á tölvunni og með viðkomandi tungumál (íslensku/ensku) skilgreint sem sjálfgefið tungumál.
    • Í mörgum blaðhlutum eru litlir hnappar lengst til hægri sem geta flýtt innslætti. Ef músinni er rennt yfir hnappinn án þess að smella birtist heiti hnapps eða lýsing á hvað hann gerir.

    Eyðublað staðfest
    Eyðublað er staðfest þegar starfsmaður hefur lokið við að færa sjúkraskrá. Óstaðfest eyðublöð safnast upp á vinnulista starfsmanns.

    Eyðublaði breytt eftir staðfestingu
    Ef breyta á eyðublaði, t.d. ef annar heilbrigðisstarfsmaður tekur við skráningu eftir vaktaskipti er það gert með eftirfarandi leiðum:
    1. Í fellivallista "Eyðublöð - Breyta blaði"
    2. Með flýtileið "Ctrl + B"
    3. Hægrismellt á eyðublað og valið "Breyta blaði"
    Ef breyta þarf undirskrift er farið í undirskriftareit, smellt á hnapp (þrír punktar) og nafn valið úr nafnalista. Ábyrgur meðferðaraðili á að vera undirritaður hverju sinni.

    Eyðublaði eytt eða ógilt
    Eyðublaði er eytt með eftirfarandi leiðum:
    1. Ýtt á hnapp hægra megin við eyðublaðaglugga
    2. Í fellivallista "Eyðublöð - Eyða blaði"
    3. Hægrismellt á eyðublaðið og valið "Eyða blaði"
    Ef eyða á staðfestu blaði er valið "Breyta blaði" áður eitt af ofangreindu er framkvæmt. Eyðublaðið varðveitist áfram í sjúkraskrá en er ekki sýnilegt.

    Eyðublað er ógilt með eftirfarandi leiðum:
    1. Í fellivallista "Eyðublöð - Ógilda blað"
    2. Hægrismellt á eyðublaðið og valið "Ógilda blað"
    3. Með flýtileið "Ctrl + D"
    Aðeins er hægt að ógilda staðfest eyðublað.

    Nánari leiðbeiningar um eyðublöð og virkni þeirra eru á vefsíðu Origo

Ritstjórn

Anna María Þórðardóttir
Hanna K Guðjónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Elísabet Benedikz

Útgefandi

Anna María Þórðardóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 11/23/2017 hefur verið lesið 523 sinnum