../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-106
Útg.dags.: 02/07/2024
Útgáfa: 4.0
2.02.04 Segulómun af útlimum
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun útlimir, stoðkerfi, liðir.
Samheiti: MRI bone, musculoskeletal, skelet, joints.
Pöntun: Heilsugátt, Leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Áverkar, bólgur, æxli, sýking, annað.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, raförvi (stimulator), og ýmis ígræddur málmur. VP-shunt þarf stundum að stilla.
Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsókn af ófrískum konum er aðeins framkvæmd þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli íhluta.
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
      • Enginn undirbúningur er fyrir þessa rannsókn.
      • Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi lyf (Dormicum 7,5 mg) en láta þarf vita með sólahrings fyrirvara og mæta 60 mínútum fyrir rannsókn.
      • Ekki má keyra í 24 klukkustundir eftir róandi lyf.
      • Mikilvægt er að mæta 10 mínútum fyrir tímann til undirbúnings. Ef komið er eftir að rannsóknartími hefst gæti þurft að fresta rannsókn og gefa nýjan tíma.
      • Bráðatilfelli geta komið upp á spítalanum sem geta valdið töfum á tíma.
      • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
      • Velkomið er að hafa aðstandanda með sér.

      Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista/spurningar áður en rannsókn hefst.
      Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
      Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
      Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.

    Aðferð:
      Stundum er gefið skuggaefni í æð, Gadovist, og þarf þá að setja æðalegg sem oftast er settur í handlegg. Hægt er að gefa skuggaefni í lyfjabrunn.
      Liggja þarf á baki eða maga á rannsóknarbekk sem færist inn í segulómtækið.
      Spóla (loftnet) er sett yfir það svæði sem á að mynda.
      Vegna hávaða í tæki eru heyrnartól sett yfir eyru og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
      Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
      Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.

    Tímalengd: 30 - 60 mínútur

    Eftirmeðferð: Engin
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. MR safety
    2. Selectional Anatomy 2

    Ritstjórn

    Ida Agata Egiert - agatai
    Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
    Alda Steingrímsdóttir
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Maríanna Garðarsdóttir

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 03/12/2015 hefur verið lesið 1560 sinnum