../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-632
Útg.dags.: 11/12/2022
Útgáfa: 7.0
2.02.40 Öndunarfæri - Háls/munnhol - Vincent´s angina
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Hálsstrok - Greining Vincent´s angina með Gramslitun
Samheiti:
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    Vincent's angina er algengt heiti á slæmri sýkingu í munnholi, gómum/tannholdi og hálsi, sem talin er orsakast af blöndu baktería. Önnur heiti eru necrotizing ulcerative gingivitis" (NUG) eða "fusospirochetal disease". Sýkingunni, sem oft er mjög sársaukafull, fylgir gjarnan hiti, höfuðverkur, vond lykt af andardætti og eitlastækkanir á hálsi. Oft brenglast bragðskyn. Sýkingin hefst oft skyndilega ("acute necrotizing ulcerative gingivitis", ANUG) og er það sársaukafull að það er erfitt að tyggja. Einkennandi er að einhverskonar himna myndast yfir sýkta svæðinu og myndast sár ef reynt er að fjarlægja hana.
    Sýkingarvaldar eru Fusobacterium spp., Borrelia spp.og aðrar loftfirrðar bakteríur.Sérstaklega eru þar nefndar Fusobacterium necrophorum og nucleatum, Borrelia vincentii, Spirochaeta denticulata, Prevotella spp., Porphyromonas gingivalis, Tannerella forsythensis, Treponema denticolaofl. Bacteroides urealyticus og forsythus,en ekki B. fragilis hópurinn, eru einnig á meðal orsakavalda sýkinga í munnholi.

    Sýkingin er meðhöndluð með penisillíni eða metrónídazóli.

    ATH.:
    Munnangur-sár ("canker sores", "aphthous ulcers") hafa enga þekkta örveru sem orsök og
    skyldi því ekki rækta.
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Helsta leiðin til greiningar er smásjárskoðun á Gram´s- (eða methylene blue-) lituðu skafi eða
    stroki, sem tekið er frá sári/sýktu svæði. Ef mikið sést af gormlaga bakteríum (spirochaetum),
    Gram neikvæðum stöfum sem mjókka til endanna (fusiform stöfum) og kleyfkjarna átfrumum
    í sýninu bendir það til Vincent´s angina. Sé sjúklingur jafnframt með dæmigerð klínísk
    einkenni þykir greiningin vera ljós.
    Einnig má reyna ræktun eða kjarnsýrumögnun (NAAT) fyrir F. necrophorum(síðarnefnda rannsóknin ekki gerð á Sýkla- og veirufræðideild Lsh).
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Ílát og áhöldÍlát og áhöld
      Smásjárgler (ef tiltækt).
      Bakteríuræktunarpinni eða tannholdsskafa.
      Hide details for Lýsing sýnatökuLýsing sýnatöku
      Stroki eða skafi frá sýktu svæði annaðhvort strokið beint á gler eða bakteríuræktunarpinni sendur.
      Betra ef sýni er sett beint á gler. Sýnið er þá látið þorna á glerinu, sem hefur verið merkt sjúklingnum. Til að sýnið nuddist ekki af við flutninginn er gott að leggja annað gler yfir og líma þau saman.

      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla
      Hide details for Geymsla ef bið verður á sendinguGeymsla ef bið verður á sendingu
      Sé sendur bakteríuræktunarpinni þarf hann að berast innan sólarhrings, annars er hætt við að smájárskoðunin gefi ekki rétta mynd. Gler ætti líka að berast sem fyrst, helst innan sólarhrings. Geyma má við stofuhita eða í kæli.
      Hide details for FlutningskröfurFlutningskröfur
      Má flytja við stofuhita. Vanda frágang smásjárglers þannig að það brotni ekki.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Sýnið er smásjárskoðað sem fyrst eftir komu á deildina og svarað strax eftir það.
      Svarið birist rafrænt í Cyberlab og skriflegt svar sent ef beiðandi hefur ekki aðgang að rafrænu svari.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Fari dæmigert útlit smásjárskoðunar saman við einkenni, má ætla að greining sé komin.


    Ritstjórn

    Hjördís Harðardóttir
    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Hjördís Harðardóttir

    Útgefandi

    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 10/21/2012 hefur verið lesið 1246 sinnum