../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-042
Útg.dags.: 01/28/2021
Útgáfa: 4.0
2.02.03.01.01 CA 19-9 æxlisvísir
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Æxlisvísirinn CA 19-9 er glýkólípíð-antigen og hluti Lewis blóðflokka antigensins. Í plasma er CA 19-9 antigenið að finna á glýkolípið-proteini (mucin) með breytilega sameindaþyngd á bilinu 200-1000 kDa. CA 19-9 próteinið er tjáð á yfirborði fruma í brisi, gallvega, maga, ristli, lifur, lungum og legslímhúð. Það getur losnar af yfirboði frumnanna og borist út í plasma bæði frá góðkynja og illkynja frumum. Um 5% einstaklinga myndar ekki antigen Lewis blóðflokksins og tjá því ekki CA-19-9 antigenið.
Helstu ábendingar:
Æxlisvísirinn CA 19-9 er helst notaður við eftirfylgni og mat á sjúkdómsgangi hjá sjúklingum með briskirtils- og gallgangakrabbamein. Ekki er mælt með að nota CA 19-9 til skimunar.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
0,5 ml lithíum heparin plasma. Hægt er að nota sermi, en ekki er hægt að nota sítrat-plasma.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.
Sjúklingar sem fá bíótínskammta (<5 mg/dag) verða að láta a.m.k. 8 klst. líða frá bíótín inntöku þar til sýni er tekið, að öðrum kosti má búast við falskri hækkun.
Geymist 5 daga í kæli.
Mæling er gerð alla daga.
Mælt á Rannsóknarkjarna Hringbraut.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
< 35 kU/L.
Niðurstöður
Niðurstöður
Túlkun:
80-95% sjúklinga með briskirtilskrabbamein eru með hækkað gildi CA 19-9 í plasma og er fylgni á milli stærðar krabbameins og árangurs af meðferð. Verulegar hækkanir geta einnig komið við krabbamein í maga og ristli.
Væg hækkun á CA 19-9 getur orðið við marga góðkynja sjúkdóma svo sem við marga bólgusjúkdóma I meltingarvegi og lifur, briskirtilsbólgu, gallgangabógu, lungnasjúkdóma sem og slímseigjusjúkdóm (cystic fibrosis).
Heimildir
Heimildir
Roche fylgiseðill: CA19-9 Cobas, REF 07027028190 2017.05 v.2.0
Peter Nilsson-Ehle, red. Laurells Klinisk kemi í praktisk medicin. Lund: Studentlitteratur 2012 síður 637-638.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ísleifur Ólafsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »