../ IS  
Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer: Rblóð-051
Útg.dags.: 08/06/2024
Útgáfa: 4.0
2.02.01.01 Kekkjun blóðflaga
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
    Eðlilegar blóðflögur kekkjast (loða saman) við espun (activation) með ýmsum efnum. Meðal þeirra eru ADP, adrenalin, collagen, ristocetin, thrombín og mörg fleiri. Í rannsóknini eru blóðflögur espaðar með þessum efnum (agonistar) og þegar blóðflögur kekkjast minnkar ljósgleypni í sýninu. Rannsóknin er tímafrek og aðeins gerð í samráði við lækna rannsóknastofu í blóðmeinafræði.
    Hide details for Sýnataka, sending og geymslaSýnataka, sending og geymsla
    Undirbúningur sjúklings: Gæta skal þess að sjúklingur hafi ekki tekið lyf sem innihalda acetylsalicylsýru, síðustu 10 dagana fyrir rannsóknina eða aðra blóðflöguhemla í a.m.k. 7-10 daga. Eftir blóðflögugjöf þurfa að líða 12 dagar áður en blóðflögukekkjun er gerð.

    Rannsóknin er tímafrek og aðeins gerð í samráði við lækna rannsóknastofu í blóðmeinafræði og nauðsynlegt er að panta tíma á rannsóknadeild Hringbraut fyrir blóðflögukekkjun.
    Lífeindafræðingur í storkurannsóknum sér um blóðtöku.
    Gerð og magn sýnis:
    30 ml blóð tekið í 3,2% natríumsítrat sem storkuvara í hlutföllunum 9:1.. Litakóði samkvæmt Greiner.
    Sýnið á ekki að kæla.
Niðurstöður eru túlkaðar af læknum blóðmeinafræðideildar
Svar:
Túlkun
Hækkun:Læknar blóðmeinafræðideildar túlka niðurstöður.
    Lækkun:Læknar blóðmeinafræðideildar túlka niðurstöður.
    Breytileiki: Skert eða upphafin kekkjun getur verið áunnin (fylgir t.d. neyslu aspiríns og fleiri lyfja, í myeloprólíferatífum sjúkdómum, MDS) eða meðfædd í ýmsum arfgengum blóðflögugöllum.

Ritstjórn

Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Sigrún H Pétursdóttir
Páll Torfi Önundarson

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Páll Torfi Önundarson

Útgefandi

Sigrún H Pétursdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 05/09/2011 hefur verið lesið 4672 sinnum