../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-101
Útg.dags.: 06/16/2023
Útgáfa: 5.0
2.02.01.01 Kalsíum í sólarhringsþvagi
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Sjá S-Kalsíum. Útskilnaður kalsíum í þvagi er háður þéttni jónaðs kalsíums í plasma og einnig gaukulsíunarhraða, starfsemi tubuli og þéttni parathyroidhormóns (PTH) í blóði, en PTH stjórnar endurupptöku kalsíums í tubuli. Mikill útskilnaður á kalsíum í þvagi eykur líkur á myndun nýrnasteina
.
Þættir sem hafa áhrif á kalsíumútskilað eru próteinneysla, sýru-basa jafnvægi líkamans, fosfat- og þó einkum kalsíumneysla. Við túlkun niðurstaðna er nauðsynlegt að hafa hugmynd um kalsíumneyslu. Útskilnaður kalsíums er lægri hjá öldruðum. Nokkur dagsveifla er á útskilnaði kalsíums og er minnstur yfir nóttina, mestur fyrri hluta dags.
Helstu ábendingar: rannsóknir vegna nýrnasteina.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Sólarhringsþvagi er safnað samkvæmt leiðbeiningum rannsóknastofunnar. Sýra skal þvagið með því að setja 25 mL af 50% ediksýru í söfnunarílát áður en söfnun hefst. Magn þvags mælt og 10-20 mL sendir til rannsóknar ásamt upplýsingum um þvagmagn. Má senda ósýrt á rannsóknastofu og sýra þvagsýnið þegar það kemur fram.
Geymist í 7 daga í kæli og > mánuð fryst.
Sýni má senda við stofuhita.
Mæling er gerð alla daga vikunnar
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
2,5 - 8,0 mmol/24klst.
Niðurstöður
Niðurstöður
Túlkun
Hækkun:
Hyperparathyroidismus. Útskilnaður er aukinn þegar S-kalsíum hækkar, einnig við svokallaða hyperkalcuria idiopatica og oft við ofstarfsemi skjaldkirtils, Aðrar ástæður geta verið D-vítamíneitrun, sarcoidosis, multiple myeloma, meinvörp í beinum, Cushingssjúkdóm og sterameðferð.
Lækkun:
Hypoparathyreoidismus, D-vítamínskortur, metabolisk alkalosis
Heimildir
Heimildir
Bruger handbok I Klinisk Kjemi. Stakkestad JA, Åsberg A.Akademisk Fagforlag AS 1996
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fourth Edition. Elsevier Saunders. 2012
Ritstjórn
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ingunn Þorsteinsdóttir
Útgefandi
Ingunn Þorsteinsdóttir
Upp »