../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-137
Útg.dags.: 05/30/2024
Útgáfa: 5.0
2.02.01.01 Mýóglóbín
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Mýóglóbín bindur súrefni í vöðvafrumum og hefur mólmassann 17,8 kDa. Mýóglóbín í miklu magni í umfrymi fruma í hjarta og þverrákóttum vöðvum. Við skemmd á frumuhimnu lekur mýóglóbín fljótt út í blóðið. Mýóglóbín hækkar þegar innan tveggja klukkustunda frá vöðvaskemmd. Aðferðir til að mæla mýóglóbín greina ekki á milli mýóglóbíns frá hjarta og þverrákóttum vöðvum. Mýóglóbín hefur stuttan helmingunartíma í blóði.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmdSýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd
Gerð og magn sýnis:
Plasma 0,5 ml. Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.

Sýni geymist í 7 daga við 2-8°C og 3 mánuði við -20°C.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
karlar < 76 µg/L.
konur < 64 µg/L,
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun
    Hækkun: Hækkun á mýóglóbíni sést við skemmdir á þverrákóttum vöðvum, skemmdir á hjartavöðva, mikla líkamlega áreynslu og við nýrnabilun.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill MYO2, 2017-03, V 9.0 Roche Diagnostics, 2017
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders. 2012

      Ritstjórn

      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Sigrún H Pétursdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 3742 sinnum