../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-068
Útg.dags.: 03/03/2023
Útgáfa: 7.0
2.02.01.01 Fenýtóin
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Fenýtóín er flogaveikilyf. Lyfið frásogast hægt en öruggleg frá meltingarvegi og aðgengi er um 90%. Hámarksþéttni í sermi næst eftir u.þ.b. 4-8 klst frá inntöku. Dreifingarrúmál er að meðaltali 0,6 L/kg og lyfið er um 90-95% próteinbundið. Fenýtóin er að langstærstum hluta brotið niður í óvirk niðurbrotsefni í lifur fyrir tilstilli CYP 2C9 og 2C19 og þau síðan skilin út um nýru samtengd glúkúróníði. Lyfjahvörf fenýtóíns fylgja núll stigs kínetík, þ.e. niðurbrotsferlið er mettanlegt. Helmingunartími brotthvarfs er því háður þéttni lyfsins og getur verið mjög breytilegur eða frá 10-40 klst. Þannig er t.d. helmingunartíminn að meðaltali um 20 klst þegar S-fenýtóín er 60 µmól/L en helmingunartíminn styttist við lægri sermisstyrk og lengist við hærri sermisstyrk. Mörg lyf ýmist auka eða minnka virkni fenýtóíns gegnum virkjun eða hömlun niðurbrotsensíma. Jafnvægi næst á sermisþéttni fenýtóins eftir 5-15 daga lyfjatöku. Fyrstu merki um eitrun af völdum fenýtóíns eru augntin, ósamhæfðar hreyfingar og tormæli. Við alvarlegar eitranir kemur fram riða, ofviðbrögð, svefnhöfgi og meðvitundarleysi.
Helstu ábendingar:
Meðferðareftirlit. Til að greininga fenýtóín eitranir.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Undirbúningur sjúklings: Við meðferðareftirlit skal sýni safnað rétt fyrir venjulegan lyfjatökutíma. Sýni skal ekki safnað fyrr en jafnvægi er komið á lyfjastyrkinn í blóði sem er eftir u.þ.b. 5 helmingunartíma lyfsins (á bæði við í upphafi lyfjameðferðar og eins eftir breytingar á skömmtum).
Gerð og magn sýnis: Sýni tekið í serum glas með rauðum tappa án gels (svört miðja) . Litakóði samkvæmt Greiner
Geymist: 4 daga í kæli og 1-2 mánuði frosið við -20°C.

Framkvæmd: Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Hide details for MeðferðarmörkMeðferðarmörk
40 - 80 µmól/L.

Eitrunarmörk: > 80 µmól/L.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Truflandi efni: Gel í blóðtökuglasi getur valdið falskri lækkun á styrk lyfs í blóðsýni með því að draga lyfið í sig. Þessi lækkun getur verið klínískt marktæk, háð rúmmáli sýnis og þeim tíma sem sýnið er geymt í glasinu.

    Túlkun
    Meðferðarmörk miðast við lággildi (e. trough levels). Vegna óvenjulegra lyfjahvarfa fenýtóíns er alltaf viss hætta á eitrun þar sem lítil skammtaaukning getur valdið mikilli hækkun á sermisstyrk lyfsins. Við sermisstyrk > 160 µmól/L koma fram alvarlegar eitranir. Úremía getur haft áhrif á próteinbindingu fenýtóins, þ.e. valdið aukningu á fríu fenýtóíni og í slíkum tilfellum getur þurft að minnka lyfjaskammta til að koma í veg fyrir eitrun.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Phenytoin, 2022-07, V 12, Roche Diagnostics.
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition, Elsevier Saunders, 2017.

      Ritstjórn

      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir
      Fjóla Margrét Óskarsdóttir
      Guðmundur Sigþórsson

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 4236 sinnum