../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-045
Útg.dags.: 09/23/2020
Útgáfa: 7.0
2.02.03.01.01 Beta hCG
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Chóríón-gónadótrófin (CG) (einnig kallað human chóríón-gónadótrófín (hCG)) er próteinhormón, byggt upp af tveimur undireiningum, þ.e. einni α-keðju og einni β-keðju. CG myndast í fylgju og verður greinanlegt í blóði 7-10 dögum eftir getnað, nær hámarki á 8-10 viku þungunar, lækkar þá lítillega fram að 20. viku en helst síðan nokkuð stöðugt fram að fæðingu. CG hverfur úr sermi nokkrum dögum eftir fæðingu. Ákveðin æxli mynda CG, t.d. æðabelgsæxli (throboblastic tumors) og kynfrumuæxli. Aðferðin sem hér er notuð mælir samanlagt magn CG og frírra β undireininga.
Helsu ábendingar:
Til að greina þunganir, utanlegsþykkt og fósturlát. Notað sem æxlisvísir til greiningar og eftirfylgni á CG framleiðandi æxlum. Notað ásamt öðrum þáttum til að meta líkur á trisomy 21 (Down´s heilkenni).
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
.
Litakóði samkvæmt Greiner.
Geymsla:
Geymist í 3 daga í kæli og í 1 ár í frysti.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar rannsóknarkjarna Hringbraut.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
U/L
Karlar
≤ 3
Konur
≤ 5,5
Þungaðar konur
Vikur frá upphafi síðustu tíðablæðinga
U/L
3
5,8-71,2
4
9,5-750
5
217-7138
6
158-31795
7
3697-163563
8
32065-149571
9
63803-151410
10
46509-186977
12
27832-210612
14
13950-62530
15
12039-70971
16
9040-56451
17
8175-55868
18
8099-58176
Niðurstöður
Niðurstöður
Truflandi efni:
Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri lækkun, í hCG aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).
Túlkun:
Hækkun:
Við fjölburameðgöngur geta sést CG gildi sem eru hærri en sjást við eðlilegar einburaþunganir. Hækkun á CG umfram viðmiðunarmörk á öðrum þriðjungi meðgöngu geta tengst auknum líkum á trisomy 21 en niðurstöðunar þarf að meta í samhengi við aðra þætti.
Æðabelgsæxli (hydatiform mole og choriocarcinoma) geta komið fyrir hjá konum á barneignaraldri og fylgir þeim oft mikil hækkun á CG. Hjá körlum getur komið fram hækkun á CG við krabbamein í eistum. CG hækkun getur einnig tengst öðrum krabbameinsgerðum.
Lækkun
: Magn CG tvöfaldast á 1,5-2 daga fresti á fyrstu vikum þungunar. Sé tvöföldunarhraðinn hægari gæti það bent til utanlegsþykktar eða til yfirvofandi fósturláts.
Heimildir
Heimildir
Upplýsingableðill HCG+ β (Intact human chorionic gonadotropin + the β-subunit), 2010-03, V 14. Roche Diagnostics, 2010.
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fourth Edition. Elsevier Saunders, 2006.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Guðmundur Sigþórsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »