../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-085
Útg.dags.: 01/06/2015
Útgáfa: 3.0
2.02.05.02.01 Blöðru- og þvagrásarrannsókn
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Blöðru- og þvagrásarannsókn.
Samheiti: MUCG (micturition-urethrocystographia),
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Bakflæði frá blöðru til nýrna, þrengsli í þvagrás, mat á blöðru o.fl.
Frábendingar: Engar.
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur: Enginn, nema ef barn er mjög órólegt fyrir rannsókn er hægt að fá róandi lyf í samráði við barnadeild.

    Aðferð: Við myndgreiningarannsókn af þvagfærum er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun. Rannsókn fer þannig fram að þvaglegg er komið fyrir í þvagblöðru og skuggaefni er látið renna inn. Teknar eru myndir í skyggningu þegar blaðran er að fyllast og um leið og sjúklingur tæmir blöðruna. Geislafræðingur framkvæmir rannsókn.

    Tímalengd: 1 klst.

    Eftirmeðferð: Engin.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir á innri vef.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Soffía G Þorsteinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Pétur Hannesson

    Útgefandi

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 10/31/2011 hefur verið lesið 2778 sinnum