../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-085
Útg.dags.: 01/15/2024
Útgáfa: 5.0
2.02.02.01 Blöðru- og þvagrásarrannsókn
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Blöðru- og þvagrásarannsókn
Samheiti: MUCG (Micturition urethrocystography)
Pöntun: Heilsugátt, Leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Bakflæði frá blöðru til nýrna, þrengsli í þvagrás, mat á þvagblöðru
Frábendingar: Engar
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd
    Undirbúningur: Enginn.
    Börn þurfa yfirleitt að fá róandi lyf svo þau séu kyrr.
    Ef gefa þarf róandi lyf sér dagdeild barna um lyfjagjöf.

    Aðferð: Í Rannsókn er þvaglegg komið fyrir í þvagblöðru og skuggaefni látið renna inn.
        Fylgst er með skuggaefni þegar blaðran er að fyllast og einnig er hún tæmist.
        Geislafræðingur eða læknir framkvæmir rannsóknina.
        Við myndgreiningarannsókn af þvagfærum er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi
        geislun.

    Tímalengd: 1 klst.

    Eftirmeðferð: Engin.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni, sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

    Ritstjórn

    Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
    Alda Steingrímsdóttir
    Soffía G Þorsteinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Arnar Þórisson - arnartho

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 10/31/2011 hefur verið lesið 2974 sinnum