../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-085
Útg.dags.: 12/09/2021
Útgáfa: 5.0
2.02.01.01 Ig-A
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: IgA er byggt úr tveimur alfa-keðjum og tveimur lambda- eða kappakeðjum. IgA er að magni u.þ.b. 10-15% immúnóglóbúlína í sermi. IgA er mikilvægt fyrir ytri varnir slímhúðar og er ráðandi mótefni í líkamsvessum (þarma og öndunarfæra, svita og tárum).
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er gerðSýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er gerð
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.

Sýni geymist í viku í kæli og 8 mánuði við -20°C
Mæling gerð alla daga á Rannsóknarkjarna Hringbraut.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
Aldur:
IgA: g/L
1/2-2 mán
0,03 - 0,7
3-6 mán
0,04 - 0,9
7-11 mán
0,1 -1,0
1-2 ára
0,1 - 1,2
3-4 ára
0,2 - 1,4
5-6 ára
0,3 - 2,0
7-9 ára
0,3 - 2,6
10-16 ára
0,5 - 2,9
Fullorðnir
0,7 - 3,7
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun
    Hækkun: IgA hækkun, með enga eða litla aukningu á IgG og IgM, sést við colitis ulcerosa og Crohns sjúkdóm. Mesta hækkun sést við mergæxli með einstofna aukningu á IgA (paraprótein, M-komponent). Við flestar sýkingar hækkar IgA og einnig IgG og IgM.
    Lækkun: Lækkar við meðfæddan skort á IgA. Lækkun sést einnig í tengslum við aðra sjúkdóma, t. d. mergæxli, þar sem einstofna mótefnið er ekki af IgA-gerð, lymphoma. og króniskt lymphatiskt hvítblæði.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill IGA2, 2017-08, V 12.0 Roche Diagnostics, 2017
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012.

      Ritstjórn

      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Sigrún H Pétursdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 2081 sinnum