../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-054
Útg.dags.: 02/10/2015
Útgáfa: 1.0
2.02.06.101 TS tennur og kjálki
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af tönnum og kjálka.
Samheiti: CT Dental.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Fyrir aðgerð á tönnum og kjálka.
Frábendingar: Engar.
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur: Enginn, en mælt er með að fjarlægja skartgripi áður en komið er í rannsókn.

    Aðferð: Liggja þarf á rannsóknarbekk með höfuð í sérstöku statífi og band sett á enni til að forðast hreyfingu. Mikilvægt er að liggja kyrr á meðan myndataka fer fram til að forðast myndgalla.
    Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina. Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví-og þrívídd. Þær geta gefið ítarlegar upplýsingar um ástand líffæra og æða.

    Tímalengd: 20 mín.

    Eftirmeðferð: Engin.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Pétur Hannesson

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 04/04/2015 hefur verið lesið 856 sinnum