../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-105
Útg.dags.: 02/07/2024
Útgáfa: 3.0
2.02.04 Segulómun af kvið - mjógirni
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun mjógirni, smáþarmar.
Samheiti: MRI passage.
Pöntun: Heilsugátt, Leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Bólgur í mjógirni, fyrirferð.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. VP - shunt þarf stundum að stilla.
Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsókn af ófrískum konum er aðeins framkvæmd þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli íhluta.

    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
      • Fasta þarf á mat og drykk í 6 klukkustundir fyrir rannsókn. Hvorki reykja né tyggja tyggigúmmí.
      • Mikilvægt er að mæta 10 mínútum fyrir tímann til undirbúnings. Ef komið er eftir að rannsóknartími hefst gæti þurft að fresta rannsókn og gefa nýjan tíma.
      • Bráðatilfelli geta komið upp á spítalanum sem geta valdið töfum á tíma.
      • Taka má sín reglulegu lyf eins og venjulega.
      • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
      • Velkomið er að hafa aðstandanda með sér.

      Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista/spurningar áður en rannsókn hefst.
      Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
      Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
      Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.
    Aðferð:
      • Áður en rannsókn hefst þarf að drekka 1½ lítra af sykurlausn (sorbitol+vatn) í 40 mínútur. Drekka þarf 1 glas á 4 mínútna fresti.
      • Oft er gefið skuggaefni í æð, Gadovist og þarf þá að setja æðalegg sem oftast er settur í handlegg. Hægt er að gefa skuggaefni í lyfjabrunn.
      • Liggja þarf á grúfu á rannsóknarbekk, stórt belti (spóla) er sett yfir bakið og bekkurinn færist inn í segulómtækið.
      • Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
      • Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
      • Heyrnartól sett yfir eyru vegna hávaða í tæki og til að heyra öndunarleiðbeiningar.
      • Halda þarf inni andanum í 10 til 20 sekúndur í hverri myndaseríu. Mikilvægt er að fylgja öndunarleiðbeiningum geislafræðings.
      • Í miðri rannsókn er gefið lyf í æð eða vöðva, Buscopan 20 mg/ml, til að minnka þarmahreyfingar og fljótlega þar á eftir er skuggaefnið gefið.

    Tímalengd: 70 mínútur með undirbúningi

    Eftirmeðferð: Engin, en sykurlausnin getur valdið lausum hægðum eða niðurgangi.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. MR safety
    2. Selectional Anatomy 2

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Ida Agata Egiert - agatai
    Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Maríanna Garðarsdóttir

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 03/03/2015 hefur verið lesið 1054 sinnum