../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-080
Útg.dags.: 08/25/2015
Útgáfa: 2.0
2.02.05.02.01 Leg- og eggjaleiðararannskókn
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Leg- og eggjaleiðararannsókn.
Samheiti: Hysterosalpingografia (HSG).
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Ófrjósemi vegna lokunar á eggjaleiðurum, anomaliur o.fl.
Frábendingar: Rannsókn er einungis framkvæmd á 7 -10 degi tíðahrings, skuggaefnisofnæmi.

Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á myndgreiningardeild tveimur dögum fyrir rannsókn.
Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur:
      • Rannsókn er framkvæmd á 7 - 10 degi tíðahrings.
      • Fasta á mat og drykk 2 klst. fyrir rannsókn, þó má dreypa á vökva.
      • Taka má sín reglulegu lyf eins og venjulega ef einhver eru.
      • Taka má verkjalyf fyrir rannsókn.
Aðferð: Við myndgreiningarannsókn af legi er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og eru myndir teknar í skyggningu.
Rannsókn fer þannig fram að leggur er settur upp í legháls og joðskuggaefni sprautað í holrúm legsins. Ef eggjaleiðarar eru opnir fer skuggaefnið greiða leið út í kviðarhol. Rannsókninni geta fylgt óþægindi líkt og tíðaverkir.
Rannsókn er framkvæmd af röntgenlækni með aðstoð geislafræðings.

Tímalengd: 30 mínútur

Eftirmeðferð: Forðast skal áreynslu það sem eftir er dags. Gott er að hafa með sér dömubindi því skuggaefnið getur lekið niður og eðlilegt er að blæði örlítið eftir rannsóknina.
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt LSH.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Soffía G Þorsteinsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 02/11/2014 hefur verið lesið 1299 sinnum