../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-113
Útg.dags.: 01/07/2015
Útgáfa: 3.0
2.02.05.02.01 Ristilrannsókn - Undirbúningur
Undirbúningur daginn fyrir rannsókn
1. Tært fljótandi fæði, sjá dæmi hér neðar. Það sem ekki má drekka eru; gosdrykkir, kolsýrt vatn, mjólk eða rjómi.
2. Blanda af picoprep keypt í apóteki, hægðarlyfi er drukkin tvisvar yfir daginn, að morgni og um miðjan dag.
3. Drekka vel yfir daginn, minnst 2 lítra af vökva og gjarnan næringarríka sæta drykki til að halda líkamsstyrk.
Picoprep er duft sem er leyst upp í einum bolla (150ml) af köldu vatni og hrært í 2 – 3 mín áður en það er drukkið. Stundum hitnar lausnin þegar duftið leysist upp og ef slíkt gerist skaltu bíða þar til lausnin kólnar. Lesið vel fylgiseðil með lyfinu; sjá:
fylgiseðil
Einstaklingar með alvarlegan nýrnasjúkdóm, hjartasjúkdóm, virkan bólgusjúkdóm í þörmum t.d. Crohn´s mega ekki nota Picoprep hægðalyf til hreinsunar á þörmum.
Þeir skulu vera á fljótandi fæði í 2 daga fyrir rannsókn og það á einnig við um einstaklinga með stóma.
Ef vafi er um hvort þú
mátt nota Picoprep
vinsamlegast hafið samband við þinn lækni sem sendi þig í rannsóknina.
Taka má sín föstu lyf ef einhver eru. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um úthreinsun.
svo að rannsóknin takist vel.
Daginn fyrir röntgenrannsókn af ristli:
Kl. 8.00
Drekka minnst eitt glas af tærum vökva.
Strax á eftir er fyrra bréf af Pricoprep leyst upp í 150 ml af vatni og drukkinn og minnst eitt glas af köldu vatni eða safa til viðbótar.
Drekkið eins mikið af tærum vökva og mögulegt er til að vega upp á móti þeim vökva sem tapast með þarmahreyfingunum.
Kl. 13.00
Drekka minnst þrjú glös (720ml) af sætum eða næringarríkum tærum vökva.
Seinna bréfið af Pricoprep leyst upp í 150 ml. af vatni og drukkið.
Allt síðdegið má halda áfram að drekka sætn eða næringaríkn tæra vökva að vild.
Kl. 19.00
Drekka minnst eitt glas af fljótandi fæði t.d súpu eða seiði.
Halda má áfram að drekka tæra vökva til miðnættis.
Tærir vökvar sem drukknir eru eftir miðnætti geta orsakað tíðari salernisferðir og truflað svefn.
Að morgni rannsóknardags:
Fasta og ekki reykja, en þó er leyfilegt að drekka 2 glös af vatni eða ávaxtasafa.
Dæmi um fljótandi fæði:
Tærar súpur, síaður ávaxtasafi og saftsúpur.
Hafra- og hrísgrjónaseiði.
Tær ávaxtasafi (án aldinkjöts).
Tærir orkudrykkir goslausir t.d Gatorade.
Kaffi og Te með hunangi eða sykri, þó ekki meira en 3 bolla á sólarhring.
Frostpinnar án súkkulaðihúðar.
Drekka vel og gjarnan næringarríka sæta drykki til að halda líkamsstyrk.
Myndgreiningardeild- Rannsóknarsvið
Hringbraut - Sími 543 8000
Fossvogur - Sími 543 83
0
0
Ritstjórn
Alda Steingrímsdóttir
Soffía G Þorsteinsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Pétur Hannesson
Útgefandi
Upp »