../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-127
Útg.dags.: 09/28/2023
Útgáfa: 7.0
2.02.01.01 LH
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: LH (luteinizing hormone) eða lútrópín er próteinhormón sem er myndað í heiladingli. Hjá konum stuðlar LH að egglosi, viðheldur gulbúi og örvar prótesterónmyndun á seinni hluta tíðahrings. Hjá körlum örvar LH Leidig frumur í eistum til testósterón myndunar. Hjá konum á barneignaraldri breytist styrkur LH með tíðahringnum, hæst gildi um miðbik tíðahrings. Við tíðahvörf hækkar sermisstyrkur LH. Styrkur LH er lágur hjá börnum er fer að stíga þegar dregur að kynþroska og nær fullorðinsgildum á unglingsárum.
Helstu ábendingar: Grunur um sjúkdóma í undirstúku-heiladinguls-kynkirtla kerfinu. Til að tímasetja egglos. Til að staðfesta tíðahvörf.
Hide details for MæliaðferðMæliaðferð
Electrochemiluminiscence immunoassay "ECLIA" á mælitæki frá Roche (cobas e immunoassay analyzers)
Hide details for Sýnataka, sending og geymslaSýnataka, sending og geymsla
Gerð og magn sýnis:
Plasma 0,5 ml. Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.
Geymist 14 daga í kæli og 6 mánuði í frysti.
Mæling gerð einu sinni í viku.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
U/L
Konur: eggbúsfasi
2,4 - 12,6
miðbik tíðahrings
14,0 - 96
gulbúsfasi
1,0 - 11
eftir tíðahvörf
7,7 - 58,5
Karlar:
1,7 – 9
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri lækkun, í LH aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).

    Túlkun: LH styrk í sermi ber að túlka með tilliti til aldurs, kyns og hjá konum m.t.t. tíðahrings og þungunar.
    Hækkun: LH hækkun bendir til þess að kynkirtlar starfi ekki eðlilega og að neikvæð afturvirkni frá kynsterum á heiladingul sé ekki til staðar. Eftir tíðahvörf hækkar styrkur LH. Sjúklingar með fjölblöðrueggjasokka heilkenni hafa venjulega væga hækkun á LH en eðlileg FSH gildi. Pubertas precox af heiladingulsuppruna.
    Lækkun: Við skaða og truflanir í undirstúku og/eða heiladingli. Getnaðarvarnapillan getur lækkað styrk LH í sermi og LH gildi eru lág á meðgöngu.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill LH (Luteinizing hormone), 2021-11, V 24. Roche Diagnostics, 2016.
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition. Elsevier Saunders, 2017.

        Ritstjórn

        Sigrún H Pétursdóttir
        Ingunn Þorsteinsdóttir
        Fjóla Margrét Óskarsdóttir
        Guðmundur Sigþórsson

        Samþykkjendur

        Ábyrgðarmaður

        Ísleifur Ólafsson

        Útgefandi

        Fjóla Margrét Óskarsdóttir

        Upp »


        Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 6181 sinnum