../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-089
Útg.dags.: 11/30/2023
Útgáfa: 4.0
2.02.01.01 Antitrombín (AT3)
Verð: Sjá Gjaldskrá
Pöntunarkóði: AT3
Grunnatriði rannsóknar:
    Antitrombín vinnur gegn áhrifum thrombíns og fleiri virkra storkuþátta. Rannsóknin er fyrst og fremst gagnleg til að kanna ættlæga bláæðasegahneigð (antithrombin skort) og lækkun kemur einnig fram í DIC, lifrarbilun og nephrotic syndrome.
Gerð og magn sýnis:
Blóð tekið í storkuprófsglas sem inniheldur 3,2% natríum sítrat.
Litakóði samkvæmt Greiner.
    Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
Ath: Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki kreppa og rétta úr hnefa.
    Sýnaglas skilið niður í skilvindu við 20°C og 3000 rpm í 10 mínútur. Mælingin er gerð á plasma.
    Mælingin skal gerð innan 4 klst frá blóðtöku. Ef ekki er hægt að mæla innan 4 tíma þá á að skilja niður 2x og frysta og senda frosið.
    Má bæta við storkupróf innan 4 tíma.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar bæði í Fossvogi og Hringbraut.

Plasma geymist 4 klst við 20±5°C
Plasma geymist fryst við - 70°C.
70-135 U/dl
Svar: U/dl
Túlkun
Hækkun: Engin þýðing
    Lækkun: Lækkun á Antitrombíni III er ýmist ættgeng eða áunnin samfara sjúkdómum t.d. lifrarsjúkdómum, DIC, bláæðasegum og sepsis. Lækkar einnig við heparínmeðferð, eftir slys og aðgerðir.

Ritstjórn

Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Sigrún Reykdal
Loic Jacky Raymond M Letertre

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Sigrún Reykdal

Útgefandi

Fjóla Margrét Óskarsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 04/04/2011 hefur verið lesið 1199 sinnum