../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-072
Útg.dags.: 06/20/2017
Útgáfa: 2.0
2.02.06.101 TS háls - sameina
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af hálsslagæðum.
Samheiti: CT Carotid angiography.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Þrengsli í hálsæðum, o.fl.
Frábendingar: Skuggaefnisofnæmi. Þungun.
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd.
    Upplýsingar um serum kreatínin má finna inn á innraneti LSH, sjá Heilsugátt. Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur sykursýkislyf sem inniheldur Metformin, sem eru lyf eins og Glucophage, Glucovance eða Avandmet, sem öll innihalda Metformin, skal hætta inntöku metformin-lyfs rannsóknardag og ekki byrja aftur að taka lyfið fyrr en 48 klst. eftir rannsóknina.
    Ef gefa þarf skuggaefni í bráðarannsókn er æskilegt að endurtaka serum kreatínin mælingu eftir rannsókn.
    Sjúklingur með skerta nýrnastarfsemi sem tekur metformin-lyf skal hætta töku lyfs 48 klst. fyrir rannsókn og 48 klst. eftir skuggaefnisgjöf.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á myndgreiningardeild tveimur dögum fyrir rannsókn.
Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur: Enginn undirbúningur en mælt er með að fjarlægja alla skartgripi áður en komið er í rannsókn.
  • Ef vitað er um ofnæmi fyrir skuggaefni sem gefið er í æð á röntgen þarf undirbúning, sjá frábendingar.
  • Hætta þaf að taka sykursýkislyf sem innihalda Metformin, sjá: frábendingar.

Aðferð: Liggja þarf á baki á rannsóknabekk. Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn fer fram til að forðast myndgalla.
Setja þarf upp æðalegg í handlegg því gefið er skuggaefni, visipaque í æð. Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina. Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví- og þrívídd. Það getur gefið ítarlegar upplýsingar um ástand æða.

Tímalengd: 20 mín.

Eftirmeðferð: Engin, en gott er að vera í góðu vökvajafnvægi og drekka vel af vatni eftir skuggaefnisgjöf
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Svanhvít Hulda Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 02/10/2015 hefur verið lesið 1626 sinnum