../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-125
Útg.dags.: 11/30/2023
Útgáfa: 6.0
2.02.01.01 Anti-Xa, AXA
    Hide details for Rannsóknir -  AlmenntRannsóknir - Almennt
    Verð: Sjá Gjaldskrá
    Pöntunarkóði í Flexlab: ANTIXA, AXA
    Grunnatriði rannsóknar: Anti-Xa er próf sem mælir virkni storkuþátts Xa. Prófið er mælt hjá fólki sem fær Xa hemla, t.d. heparín, smáheparín (low molecular wight heparin), fondaparinux (Arixtra), apixaban, rivaroxaban og edoxaban.
    Hide details for Sýnataka, sending og geymslaSýnataka, sending og geymsla
    Gerð og magn sýnis:
    Blóð tekið í storkuprófsglas sem inniheldur 3,2% natríum sítrat.
    Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
    Ath: Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki að kreppa og rétta úr hnefa.
    Sýnaglas skilið niður í skilvindu í 10 mínútur (2000g) Mælingin er gerð á plasma.

    Ef ekki er hægt að framkvæma mælinguna innan 4 klst frá blóðtöku þá á að skilja sýnið niður 2x og frysta og senda það frosið.
    Má bæta við storkupróf innan 4 tíma.

    Plasma geymist 4 klst við 20±5°C
    Plasma geymist fryst við - 70°C.

    Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar á rannsóknarkjarna í Fossvogi og á Hringbraut.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Svar: Niðurstöður gefnar upp í U/ml

    Túlkun
    Hækkun: Aukin blæðingahætta
    Lækkun: Minnkuð segavörn
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Pakkaleiðbeiningar frá Diagnostica Stago

Ritstjórn

Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Loic Jacky Raymond M Letertre

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Sigrún Reykdal

Útgefandi

Fjóla Margrét Óskarsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 06/13/2014 hefur verið lesið 2004 sinnum