../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-118
Útg.dags.: 04/23/2021
Útgáfa: 7.0
2.02.01.01 CK (Kreatinkinasi)
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Kreatínkínasi (CK) hvatar efnahvarfið: Kreatinfosfat + ADP < --- > kreatin + ATP. CK finnst einkum í þverrákóttum beinagrindarvöðvum, hjartavöðva og í litlu magni í heila, meltingavegi og þvagblöðru. Við frumuskemmdir í þessum líffærum lekur ensímið út úr frumunum. Langmest af CK í blóði er komið frá þverrákóttum beingrindarvöðvum. CK er lægra í konum, en körlum og lækkar hjá eldri einstaklingum.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmdSýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja) Litakóði samkvæmt Greiner.
Sýni er skilið niður innan einnar klukkustundar við 3000 rpm í 10 mínútur.
Geymist í 7 daga í kæli.
Mælt allan sólarhringinn, alla daga.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
Karlar <50 ára: < 400 U/L; Karlar > 50 ára: < 280 U/L; Konur: <210 U/L
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun
    Hækkuð gildi sjást hjá langflestum einstaklingum með skemmd í þverrákóttum beinagrindarvöðvum og hjartavöðva. Aukning sést m. a við muscular dystrophy og í öðrum tilfellum af vöðvaskemmdum svo sem áverkum á beinagrindar vöðva. Líkamleg áreynsla veldur hækkun á CK. Einnig getur CK í blóði hækkað eftir að lyfi er sprautað í vöðva. Getur hækkað við vanstarfsemi skjaldkirtils.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Viðmiðunarmörk sjá: www.furst.no/norip
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012.

      Ritstjórn

      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Sigrún H Pétursdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 7609 sinnum