Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun æðakerfi.
Samheiti: MRA, MRI angiography.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Þrengsli, flysjun, æðagúll o.fl.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, VP - shunt , raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.
Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsóknum á þunguðum konum eru aðeins framkvæmdar þegar brýn nauðsyn þykir.
Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli.
Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur:
Enginn undirbúningur er fyrir þessa rannsókn
- Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi töflu (Dormicum 7,5 mg) og þurfa þeir að mæta 30 mínútur fyrir rannsókn. Ekki er æskilegt að keyra eftir inntöku róandi lyfs.
- Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
- Velkomið er að hafa aðstandenda með sér.
- Mikilvægt er að mæta í rannsókn á réttum tíma, ef mætt er eftir að rannsóknartími hefst getum við ekki lofað að rannsókn verði gerð en gefum þá nýjan tíma.
Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista með spurningum áður en rannsókn hefst.
Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.
Aðferð:
Í flestum tilfellum er gefið skuggaefni, omniscan í æð og þarf þá að setja upp æðalegg sem oftast er settur í handlegg.
Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, hjálmur (spóla) er settur yfir það svæði sem á að mynda og bekkurinn er færður inn í segulómtækið.
Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
Vegna hávaða í tækinu eru sett heyrnartól yfir eyru og hægt er hlusta á útvarp eða geisladisk.
Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
Í sumum tilfellum þarf að halda inni andanum og þá er mikilvægt að fylgja öndunarleiðbeiningum geislafræðings.
Tímalengd: 20 - 40 mínútur
Eftirmeðferð: Engin
Niðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt.
Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.