../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-041
Útg.dags.: 10/02/2023
Útgáfa: 8.0
2.02.01.01 CA 15-3 æxlisvísir
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Cancer Antigen 15-3 (CA 15-3) er notaður sem æxlisvísir fyrir brjóstakrabbamein. CA 15-3 er stórt glýkóprótein (300 kDa), sem er framleitt í eðlilegum kirtilgangafrumum í brjóstum og seytt inn í kirtilganga. Styrkur CA 15-3 í blóði er hækkaður hjá hluta sjúklinga með brjóstakrabbamein en einnig hjá sjúklingum með krabbamein í öðrum líffærum svo sem eggjastokkum, brisi, blöðruhálskirtli ristli og lungum og einstaka sinnum við sjúkdóma sem ekki eru illkynja.
Helstu ábendingar: Til að fylgjast með árangri meðferðar við brjóstaskrabbameini, en styrkur CA 15-3 í blóði endurspeglar stærð æxlisvefs. Einnig notað við eftirlit eftir að meðferð er lokið til að fylgjast með hvort sjúkdómurinn sé að taka sig upp aftur. Mælingin er hvorki nægjanlega sérhæfð né næm til að hægt sé að nota hana sem almennt skimunarpróf fyrir bjróstakrabbamein.
Hide details for MæliaðferðMæliaðferð
Electrochemiluminiscence immunoassay "ECLIA" á mælitæki frá Roche (cobas e immunoassay analyzers). Við mælinguna eru notuð tvö einstofna mótefni, þ.e. biotín-merkt CA 15-3 -sértækt mótefni og ruthenium-merkt CA 15-3 sértækt mótefni.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis: Lithíum heparín plasma, 0,5 ml.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja) . Litakóði samkvæmt Greiner.

Geymsla: Geymist 5 daga í kæli og 3 mánuði í frysti.
Hvar mælt og hvenær: Mælt á rannsóknakjarna á Hringbraut allan sólarhringinn alla daga vikunnar.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
< 25 kU/L.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun Mæling á CA 15-3 er yfirleitt gerð áður en meðferð við bjóstakrabbameini er hafin og síðan með ákveðnu millibili meðan á meðferð stendur og eftir að henni er lokið. Endurteknar mælingar sem sýna hvort magn CA 15-3 er fallandi eða rísandi eru yfirleitt gagnlegri en stakar mælingar.
    Hækkun: CA 15-3 er einungis hækkað hjá 23% sjúklinga með staðbundið brjóstakrabbamein en hjá 69 % sjúklinga ef meinvörp eru til staðar. CA 15-3 getur einnig verið hækkað við krabbamein í brisi, lungum, eggjastokkum, ristli, endaþarmi og lifur. Hækkanir geta líka sést við góðkynja sjúkdóma í lifur og brjóstum. Vægar hækkanir sjást einnig hjá heilbrigðum einstaklingum.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Method Sheet CA 15-3 (Cancer Antigen 15-3), RE 03045838, V20. Roche Diagnostics, 2018-10.
    Laurells Klinisk kemi í praktisk medicin. Studentlitteratur, Lund, Svíþjóð, 2012; síða 639.
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fourth Edition. Elsevier Saunders, 2006.

      Ritstjórn

      Aldís B Arnardóttir
      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir
      Fjóla Margrét Óskarsdóttir
      Guðmundur Sigþórsson

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Fjóla Margrét Óskarsdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 5365 sinnum