../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-086
Útg.dags.: 02/20/2024
Útgáfa: 4.0
2.02.02.01 Kviðslitsrannsókn-Haulrannsókn,
    Undirbúningur:
  • Létt fæði 24 klukkustudir fyrir rannsókn.
  • Klukkustund fyrir rannsókn má ekki borða eða drekka og hvorki reykja, nota nikótín né tyggja tyggigúmmí.
    Aðferð:
    Læknir gerir ástungu á kviðvegg og sprautar joðskuggaefni í kviðarhol. Myndir eru teknar í skyggningu. Framkvæmt af röntgenlækni með aðstoð geislafræðings.
    Við myndgreiningarannsókn af kvið er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun.

    Tímalengd: 30 mínútur

    Eftirmeðferð: Engin.
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

1.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
Soffía G Þorsteinsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Arnar Þórisson - arnartho

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 10/31/2011 hefur verið lesið 1511 sinnum