../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-072
Útg.dags.: 12/16/2021
Útgáfa: 7.0
2.02.03.01.01 FSH
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
FSH (follicule stimulating hormone) eða follitrópín er próteinhormón, myndað í heiladingli. Hjá konum örvar FSH eggbúsþroska og estrógen framleiðslu. Hjá körlum örvar FSH sæðisfrumumyndun. Hjá konum á barneignaraldri er styrkur FSH breytilegur innan tíðahringsins. Styrkur FSH í sermi karla er mun stöðugri. Við tíðahvörf hækkar sermisstyrkur FSH mikið. Styrkur FSH í sermi er lágur hjá börnum en fer að stíga þegar líður að kynþroskaskeiði og nær fullorðinsgildum á unglingsárum.
Helstu ábendingar:
Uppvinnsla á ófrjósemi, hjá bæði konum og körlum. Til að staðfesta grun um tíðahvörf. Grunur um sjúkdóma í heiladingli og sjúkdóma í kynkirtlum. Ótímabær eða seinkaður kynþroski hjá börnum og unglingum.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Plasma, 0,5 ml.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
. Litakóði samkvæmt Greiner.
Geymsla:
Geymist 14 daga í kæli og 6 mánuði í frysti.
Mæling er gerð alla virka daga.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
U/L
Konur:
eggbúsfasi
3,5 - 12,5
miðbik tíðahrings
5 - 21
gulbús fasi
2 - 8
eftir tíðahvörf
26 - 135
Karlar
1,5 - 12
Niðurstöður
Niðurstöður
Truflandi efni:
Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri lækkun, í aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).
Túlkun
FSH styrk í sermi ber að túlka með tilliti til aldurs, kyns og hjá konum m.t.t. tíðahrings og þungunar.
Hækkun:
FSH í sermi er hækkað ef kynkirtlar starfa ekki eðlilega og neikvæð afturvirkni frá kynsterum á heiladingul vantar. Eftir tíðahvörf er FSH styrkur í sermi hár. Pubertas precox af heiladingulsuppruna.
Lækkun
: Við skaða og truflanir í starfsemi undirstúku og/eða heiladinguls. Getnaðarvarnapillan getur lækkað serum gildi FSH og gildi eru lág eða ómælanleg á meðgöngu.
Heimildir
Heimildir
Upplýsingableðill FSH (Follicule-stimulating hormone), 2017-08, V 19,0. Roche Diagnostics, 2017.
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition. Elsevier Saunders, 2017.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Guðmundur Sigþórsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »