../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Resd-112
Útg.dags.: 03/31/2021
Útgáfa: 4.0
2.02.02.02.06 B-17-Hydroxyprogesterón
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar:
17-Hydroxyprogesterón
Annað heiti rannsóknar:
17OHP
Markmið rannsóknar:
Greining og meðferðarfylgni sjúklinga með vanstarfsemi nýrnahettna.
Aðferð:
Mæling með hjálp mótefna (immunoassay, Delfia, Perkin Elmer, Finnlandi).
Eining ESD:
Lífefnaerfðarannsóknir - nýburaskimun
Ábendingar:
Greining og meðferðarfylgni sjúklinga með vanstarfsemi nýrnahettna. Aðferðin er einkar hentug til þess að skoða sólarhringssveiflur í styrk 17-hydroxyprogesterón hjá sjúklingum með vanstarfsemi nýrnahettna, þar sem auðvelt er að taka blóðþerripappírssýni í heimahúsi í stað þess að leggja sjúklinginn inn á heilbrigðisstofnun. Að auki er hægt að mæla úr sama sýni aðra stera s.s. kortisól, androstendion , 11-deoxykortisól og 21-deoxykortisól í blóðþerripappírsýninu, ef þess þarf.
Pöntun:
Notuð er sama beiðni og fyrir nýburaskimun, gætið þess að beiðnin hafi sama raðnúmer og filterpappírinn, sem notaður er við sýnatökuna.
Sheilah Severino Snorrason deildarlífeindafræðingur (
sheilah@landspitali.is
) og Saga Rúnarsdóttir (sagar@landspitali.is) senda beiðnirnar samkvæmt ósk. Einnig má panta beiðnir í síma: 543 5056 og 543 5039, GSM 824 5238. Sýnishorn af
nýburaskimunarbeiðni.
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Undirbúningur sjúklings og sýni
Undirbúningur sjúklings og sýni
Upplýst samþykki:
Á ekki við.
Tegund sýnis:
Sýni má taka t.d. með stungu í fingur eða eyra. Notaður er sérstakur þerripappír, sem blóð er látið drjúpa í svo það fylli út í hringina. Pappírinn er látinn þorna í u.þ.b. 3-4 tíma á þurrum dimmum stað við herbergishita og látinn í umslag og sendur á rannsóknastofuna, sjá nánari leiðbeiningar á
nýburaskimunarbeiðninni
.
Magn sýnis:
Fyrir mælingu á 17-hydroxyprogesterón eingöngu er nægjanlegt að fá tvo gegnumvætta hringi. Í einum hring eru u.þ.b. 70 µL af blóði.
Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.
Flutningskröfur:
Sýni má senda með A-pósti til rannsóknastofunnar.
Geymsla ef bið verður á sendingu:
Sýnið geymist vel á þurrum dimmum stað fram að sendingu.
Svartími
Svartími
1 vika
Niðurstaða og túlkun
Niðurstaða og túlkun
Niðurstaða og túlkun eru skráðar í Shire og birtar í Heilsugátt.
Sérsvar er sent til beiðandi læknis ef viðkomandi hefur ekki aðgang að Heilsugátt.
Heimildir
Heimildir
Aðferðalýsing
Verkefnisstjóri nýburaskimunar/lífefnaerfðafræði:
Leifur Franzson lyfjafræðingur (
leifurfr@landspitali.is
)
Sími: 543 5617/824 5734.
Ritstjórn
Hildur Júlíusdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Jón Jóhannes Jónsson
Útgefandi
Hildur Júlíusdóttir
Upp »