../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-103
Útg.dags.: 02/07/2024
Útgáfa: 3.0
2.02.04 Segulómun af kvið - neðri hluti
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun neðri hluti kviðar, grindarhol, endaþarmur, leg, blöðruhálskirtill.
Samheiti: MRI abdomen, pelvis pelvic cavity, uterus, prostate
Pöntun: Heilsugátt sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Æxli, fistill, sýking, legslímuflakk.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. VP-shunt þarf stundum að stilla.
Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsókn af ófrískum konum er aðeins framkvæmd þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli íhluta.
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
      • Fasta þarf á mat og drykk í 4 klukkustundir fyrir rannsókn. Hvorki reykja né tyggja tyggigúmmí.
      • Kaupa þarf Microlax túpu til úthreinsunar i apóteki og nota hana 2 - 3 klukkustundum fyrir rannsókn.
      • Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi lyf (Dormicum 7,5 mg) en láta þarf vita með sólahrings fyrirvara og mæta 60 mínútum fyrir rannsókn.
      • Ekki má keyra í 24 klukkustundir eftir róandi lyf.
      • Mikilvægt er að mæta 10 mínútum fyrir tímann til undirbúnings. Ef komið er eftir að rannsóknartími hefst gæti þurft að fresta rannsókn og gefa nýjan tíma.
      • Bráðatilfelli geta komið upp á spítalanum sem geta valdið töfum á tíma.
      • Taka má sín reglulegu lyf eins og venjulega.
      • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
      • Velkomið er að hafa aðstandanda með sér.

      Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista/spurningar áður en rannsókn hefst.
      Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
      Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
      Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.

    Aðferð:
      Í sumum tilfellum er gefið skuggaefni í æð, Gadovist og þarf þá að setja æðalegg sem oftast er settur í handlegg. Hægt að gefa skuggaefni í lyfjabrunn.
      Yfirleitt er gefið lyf, Buscopan 20 mg/ml, í vöðva eða æð til að draga úr þarmahreyfingum á meðan rannsókn er framkvæmd.
      Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, stórt belti (spóla) er sett yfir kviðarhol og bekkurinn færist inn í segulómtækið.
      Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn er framkvæmd.
      Heyrnartól eru sett yfir eyru vegna hávaða í tæki og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
      Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.

    Tímalengd: 30 - 40 mínútur

    Eftirmeðferð: Engin
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. MR safety
    2. Selectional Anatomy 2

    Ritstjórn

    Ida Agata Egiert - agatai
    Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
    Alda Steingrímsdóttir
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Maríanna Garðarsdóttir

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 08/19/2014 hefur verið lesið 1017 sinnum