Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur: Fljótandi fæði daginn fyrir rannsókn æskilegt.
Aðferð: Við myndgreiningarannsókn af þvagfærum er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun. Teknar eru yfirlitsmyndir af nýrum, þvagleiðurum og þvagblöðru. Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina.
Tímalengd: 20 mínútur.
Eftirmeðferð: Enginn.
Niðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt.
Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.