../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-055
Útg.dags.: 06/20/2017
Útgáfa: 2.0
2.02.06.101 TS kransæðar
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af kransæðum.
Samheiti: CT coronary arteries.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Kalkanir og þrengsli í kransæðum.
Frábendingar: Skuggaefnisofnæmi. Þungun.
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd. Upplýsingar um serum kreatínin má finna inn á innraneti LSH, sjá Heilsugátt.
    Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur eitthvert af eftirtöldum sykursýkislyfjum: Glucophage, Glucovance eða Avandmet, sem öll innihalda Metformin, og nýrnastarfsemi er eðlileg skal hætta inntöku lyfs í 2 daga eftir rannsóknina.
    Ef nýrnastarfsemi er skert hjá sykursýkissjúklingi sem tekur metformin-lyf skal hætta töku lyfs 48 klst. fyrir rannsókn og 48 klst. eftir skuggaefnisgjöf.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á röntgendeild tveimur dögum fyrir rannsókn.
Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur: Hvorki má reykja né drekka örvandi drykki (kaffi, te, gosdrykki og orkudrykki ) frá miðnætti daginn fyrir rannsókn og þar til rannsókn er lokið.
  • Einstaklingar sem taka astma-, blóðþrýstings- eða hjartalyf þurfa að láta Geislafræðing eða hjúkrunarfæðing á hjartagátt vita um lyfjaheiti áður en rannsókn hefst.
  • Mælt er með að fjarlægja alla skartgripi áður en komið er í rannsókn.
  • Ef vitað er um ofnæmi fyrir skuggaefni sem gefið er í æð á röntgen þarf undirbúning, sjá, frábendingar.

Mæta skal á Hjartagátt Landspítala við Hringbraut 2 klst. fyrir rannsókn þar sem settur er æðaleggur í handlegg og undirbúningur fer fram, meðal annars gefið betablokkerar í töfluformi og nitrospray.

Aðferð: Liggja þarf á bakinu á rannsóknarbekk með hendur upp fyrir höfuð. Blóðþrýstingur er mældur og elektróður settar á bringu til að fylgjast með hjartslætti. Gefið er skuggaefni, visipaque í æðalegg í handlegg.
Mikilvægt er að liggja kyrr allan tímann til að forðast myndgalla. Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina.
Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví- og þrívídd. Það getur gefið ítarlegar upplýsingar um ástand æða og líffæra.

Tímalengd: 40-60 mín.

Eftirmeðferð: Liggja þarf á hjartagátt eftir rannsókn. Notir þú sykursýkislyf í töfluformi svo sem Glucophage, Eucreas, eða Metformin skal sleppa töku þess í 2 daga eftir tölvusneiðmyndarannsókn með skuggaefnisgjöf í æð.

Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.


Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Svanhvít Hulda Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 02/27/2015 hefur verið lesið 957 sinnum