../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-048
Útg.dags.: 06/08/2023
Útgáfa: 7.0
2.02.01.01 C-reaktíft prótein (CRP)
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
C-reaktíft prótein (CRP) er plasmaprótein sem myndast í lifur, og hefur hlutverki að gegna við bólguviðbrögð í líkamanum. CRP er bráða fasa prótein. CRP hækkar hratt og mikið við bólguviðbrögð. Hækkun sést 6-12 klst. eftir vefjaskemmd.
Sýnataka, sending og geymsla
Sýnataka, sending og geymsla
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner
Sýni er skilið niður innan einnar klukkustundar við 3000 rpm í 10 mínútur.
Sýni geymist 3 daga í kæli
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
< 10 mg/L
Niðurstöður
Niðurstöður
Hækkun:
Hækkar við bakteríusýkingar, bólgusjúkdóma, illkynja æxli, stóra áverka og eftir stórar skurðaðgerðir. Hækkar oft meira við bakteríusýkingar, en veirusýkingar.
Það er þó ekki algilt og CRP getur hækkað við t. d. við inflúensu sýkingu og einkyrningasótt (mononucleosis infectiosa)
Heimildir
Heimildir
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ingunn Þorsteinsdóttir
Útgefandi
Ingunn Þorsteinsdóttir
Upp »