../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-100
Útg.dags.: 11/19/2013
Útgáfa: 1.0
2.02.05.04.101 Só hjarta
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun hjarta
Samheiti: Cardiac MRI
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Hjartavöðvabólga, blóðþurrð (infarct), hjartagallar, æxli o.fl.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, VP - shunt , raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsóknum á þunguðum konum eru aðeins framkvæmdar þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli.

    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
      • Ekki má neyta koffíndrykkja svo sem kaffi, te, kóladrykkja og nikótíns að morgni rannsóknardags.
      • Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi töflu (Dormicum 7,5 mg) og þurfa þeir að mæta 30 mínútur fyrir rannsókn. Ekki má keyra eða nota önnur ökutæki eftir róandi lyf.
      • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
      • Velkomið er að hafa aðstandenda með sér.
      • Mikilvægt er að mæta í rannsókn á réttum tíma því við getum ekki lofað að rannsókn verði gerð ef mætt er eftir að rannsóknartími hefst en gefum þá nýjan tíma.

      Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista með spurningum áður en rannsókn hefst.
      Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti, og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
      Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa. Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.

      Alla málmhluti þarf að taka af sér. Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið. Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.
    Aðferð:
      • Í flestum tilfellum er gefið skuggaefni, omniscan og þarf því að setja upp æðalegg sem oftast er settur í handlegg.
      • Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, stórt belti (spóla) er sett yfir brjósthol og bekkurinn er færður inn í tækið.
      • Hjartalínurit (EKG) er sett á brjóstkassa og myndir teknar í takt við hjartslátt.
      • Heyrnartól er sett yfir eyru vegna hávaða og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
      • Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
      • Halda þarf inni andanum í 5 til 20 sekúndur við hverja myndaseríu. Mikilvægt er að fylgja fyrirmælum geislafræðings með öndunarleiðbeiningar.
      • Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.

    Tímalengd: 40 - 60 mínútur

    Eftirmeðferð: Engin
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir á innri vef.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. MR safety
    2. Selectional Anatomy 2

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Aðalheiður Jónsdóttir
    Halldóra Sigrún Guðmannsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Pétur Hannesson

    Útgefandi

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 05/16/2014 hefur verið lesið 1482 sinnum