../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-428
Útg.dags.: 10/09/2023
Útgáfa: 10.0
2.02.40 Öndunarfæri - Skútar - bakteríur, sveppir
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Strok frá skúta - almenn ræktun, Strok frá skúta - svepparæktun, Skol frá skúta - almenn ræktun, Skol frá skúta - svepparæktun
Samheiti: Ef sýni frá skúta í kinnbeini: Strok frá kinnholu, Skol frá kinnholu.
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    Grunur um bakteríu- eða sveppasýkingu í skútum.
    Veirur eru mjög algengur sýkingarvaldur, einkennin ganga oftast yfir á um viku.
    Hafi einkenni kvefs staðið í meira en 7-10 daga eru taldar verulega auknar líkur á bakteríusýkingu. Þær bakteríur sem helst eru taldar valda sýkingum í skútum eru Streptococcus pneumoniae, Haemophilus influenzae, Moraxella catarrhalis og Streptococcus pyogenes (Str.gr.A), að auki Staphylococcus aureusog loftfælnar bakteríur. Einnig margar tegundir Gram neikvæðra stafa. Í stórum hluta sýkinga vaxa ekki sýkingavaldar, talið er að í einhverjum þeirra tilfella séu Mycoplasma pneumoniae og Chlamydia (Chlamydophila) pneumoniae sýkingavaldar.

    Fræðsla um sveppi
    Sé grunur um sveppasýkingu skal geta þess á beiðninni og er sýnið þá einnig sent í svepparæktun.
    Sveppasýkingar í skútum eru af þrennum toga :
        i) bráð, lífshættuleg sýking hjá ónæmisbældum einstakling; sýkingin breiðist hratt út í aðlæga vefi og jafnvel blóð
        ii) hægfara, ífarandi sýking hjá annars heilbrigðum einstakling ; útbreiðsla til aðlægra vefja getur gerst á nokkrum mánuðum eða árum
        iii) staðbundinn sveppabolti hjá annars heilbrigðum einstakling.
    Grunur vaknar vegna staðbundinna einkenna frá skúta og aðlægum vefjum (s.s. augum og jafnvel heila), oft með hita hjá ónæmisbældum. Myndgreining staðfestir fyrirferð í skúta og útbreiðslu sýkingar. Brýnt er að huga strax að sveppasýkingu hjá ónæmisbældum og ná sýni frá skúta fyrir sýklarannsókn. Hjá heilbrigðum einstaklingum vaknar grunur helst þegar skútabólga svarar ekki bakteríulyfjum eða myglusveppur vex í sýni frá nefi eða skúta. Sýkingar eru algengastar í kinn- og ennisholum. Aspergillus er algengasti sýkingarvaldurinn, aðrir myglusveppir sjást mun sjaldnar.
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Bakteríurannsókn:
    Sýni er sáð til ræktunar loftháðra og loftfælinna baktería, það er einnig smásjárskoðað með Gramslitun. Helst er leitað að þeim bakteríum sem taldar eru valda skútabólgum, en þær eru: Streptococcus pneumoniae, Haemophilus influenzae, Moraxella catarrhalis og Streptococcus pyogenes (Str.gr.A), að auki Staphylococcus aureusog loftfælnar bakteríur. Einnig margar tegundir Gram neikvæðra stafa.

    Svepparannsókn:
    Sýni er strokið á gler til smásjárskoðunar, eftir Gramslitun. Ræktun fer fram í 3 vikur. Allur gróður er greindur með viðeigandi aðferðum. Upplýsingar um næmispróf má finna í leiðbeiningum.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Sérstök tímasetning sýnatökuSérstök tímasetning sýnatöku
      Helst áður en sýklalyfjameðferð hefst. Vöxtur sveppa bælist þó síðar (eftir sveppalyfjagjöf) en vöxtur baktería (eftir bakteríulyfjagjöf).
      Hide details for Gerð og magn sýnisGerð og magn sýnis
      Ef sýni er lítið og kemst ekki tafarlaust á Sýklafræðideild má setja örfáa dropa af sterílu saltvatni í glasið til að hindra uppþornun sýnis, en ekki svo mikið að þynning verði á sýni. Aldrei skal setja sýni til sýklarannsóknar í formalín.

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

      Svepparannsókn:
      Geyma við stofuhita og flytja á rannsóknastofu innan 15 mín., og í síðasta lagi innan 24 klst.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Bakteríurannsókn:
      Neikvæðri ræktun er svarað út eftir 4 sólarhringa, jákvæð ræktun gæti tekið lengri tíma. Allur vöxtur af þeim bakteríum sem taldar eru öruggir sýkingavaldar er tegundagreindur og gert næmi. Vöxtur af öðrum tegundum er metinn í hvert skipti. Bakteríur sem eru hluti eðlilegs gróðurs slímhúðanna í nefholinu eru oftast álitnar mengunarvaldur og það sama má segja um kóagúlasa neikvæða stafýlókokka.

      Svepparannsókn:
      Neikvæð svör fást eftir 3 vikur. Jákvæð svör: Ef myglusveppaþræðir sjást við smásjárskoðun á sýni, Aspergillus ræktast frá ónæmisbældum einstakling eða sjaldgæfari meinvaldar ræktast er hringt til meðferðaraðila; endanlegar niðurstöður með greiningu sveppa fylgja.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Bakteríurannsókn:
      Gert er ráð fyrir því að slímhúð heilbrigðs skúta sé án örverugróðurs. Allar bakteríutegundir, sem vaxa gætu því mögulega verið sýkingarvaldar. Oftast er litið á þær bakteríur sem eru hluti eðlilegs gróðurs slímhúðanna í nefholinu sem mengunarvalda.

      Svepparannsókn:
      Þegar sveppir finnast í skútasýni sem tekið er í skurðaðgerð eru þeir taldir sýkingarvaldar þar til annað sannast.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Karen C. Carroll og Michael A. Pfaller. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber og fél. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Wasington D.C.

    Ritstjórn

    Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt
    Ingibjörg Hilmarsdóttir
    Sandra Berglind Tómasdóttir - sandrabt
    Hjördís Harðardóttir
    Sara Björk Southon - sarabso
    Katrín Rún Jóhannsdóttir - katrinrj

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Ingibjörg Hilmarsdóttir
    Hjördís Harðardóttir

    Útgefandi

    Álfheiður Þórsdóttir - alfheidt

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 04/29/2010 hefur verið lesið 78206 sinnum