../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-208
Útg.dags.: 05/13/2022
Útgáfa: 10.0
2.02.20 Njálgur - límbandspróf
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Njálgur - límbandspróf
Samheiti:
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Límbandssýni á gleri er skoðað í smásjá. Greint er frá njálgseggjum og fullorðnum ormum þegar þeir sjást. Saur hentar ekki til greiningar á njálg.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Sérstök tímasetning sýnatökuSérstök tímasetning sýnatöku
      Sýni skal taka að (i) morgni, fyrir hægðalosun og þvott; (ii) Fyrir meðferð með sníkjudýralyfjum. Meðgöngutími frá smiti til eggjaframleiðslu fullorðins orms er 2 – 6 vikur.
      Hide details for Lýsing sýnatökuLýsing sýnatöku
      Glæru límbandi (12 eða 25 mm breiðu og 5 – 6 cm löngu) er þrýst nokkrum sinnum á húð í kringum endaþarm og það síðan lagt á smásjárgler með límhliðina niður, þrýst létt á til að festa límbandið á glerinu. Ekki skal nota ógegnsætt límband, ekki skal líma á báðar hliðar glersins eða láta límbandið ná út fyrir glerið á endunum (rífa/klippa af ef svo er).
      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Niðurstöður úr smásjárskoðun liggja fyrir < 24 klst á virkum dögum.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Egg njálgs eða fullorðinn ormur staðfesta sýkingu.
      Neikvæðar niðurstöður geta fengist þó að sýking sé til staðar; þarf að endurtaka rannsókn daglega í 4-6 daga til að útiloka sýkingu.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Carroll KC og Pfaller MA. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber og fél. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Washington D.C.

    Ritstjórn

    Katrín Rún Jóhannsdóttir - katrinrj
    Ingibjörg Hilmarsdóttir
    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Ingibjörg Hilmarsdóttir

    Útgefandi

    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 04/29/2010 hefur verið lesið 117809 sinnum