../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-177
Útg.dags.: 03/07/2023
Útgáfa: 7.0
2.02.01.01 Takrólímus
Hide details for AlmenntAlmennt
    Verð: Sjá Gjaldskrá
    Grunnatriði rannsóknar: Takrólímus er ónæmisbælandi lyf af flokki kalsíneurín-hamlara. Lyfið er öflugur hemill á T-frumu virkjun. Lyfið er notað eftir líffæraflutninga til að fyrirbyggja höfnun ígræðslulíffæris. Lyfjahvörf takrólímus eru mjög breytileg og einstaklingsbundin. Frásog frá meltingarvegi er ófullkomið en er að meðaltali um 25% (4-93%). Helmingunartími í blóði er að meðaltali um 11 klst (3-40 klst). Hinn mikli munur á aðgengi (bioavailability) milli einstaklinga tengist annarsvegar breytilegri ensímvirkni CYP3A4/5 í lifur og smágirni og hins vegar magni P-glýkópróteins í smágirni. Mörg lyf ýmist tefja eða hraða niðurbroti takrólímus. Í blóði er takrólímus 99% próteinbundið, tengt albúmíni, súru alfa-1 glýkópróteini auk þess sem það binst rauðum blóðkornum. Við takrólímus meðferð er nauðsynlegt að fylgjast með styrk lyfsins í blóði, bæði til að tryggja nægjanlega ónæmisbælingu og eins til að draga úr líkum á aukaverkunum sem eru margvíslegar, t.d. nýrnaskemmdir.
    Helstu ábendingar: Meðferðareftirlit.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
    Sýnataka: Við meðferðareftirlit skal taka sýni rétt fyrir venjulegan lyfjatökutíma.

    Gerð og magn sýnis: EDTA heilblóð, 2 ml. Sýni skal ekki skilja niður. Sýni skal taka í glas með fjólubláum tappa án gels (svört miðja) . Litakóði samkvæmt Greiner.

    Geymsla: Sýni geymist í kæli í 1 viku og í 6 mánuði í frysti.
    Framkvæmd: Mæling er gerð 3 sinnum í viku.
    Hvar mælt: LSH rannsóknarkjarni Hringbraut.
Hide details for Meðferðarmörk
Meðferðarmörk
    Meðferðarmörk: Eru einstaklingsbundin, algeng meðferðarmörk eru á bilinu 3-15 ng/mL.
    Eitrunarmörk: > 15 ng/mL.
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Truflandi efni:
    Biotin (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri hækkun, í takrólímus aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5 mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).

    Túlkun: Meðferðarmörk eru einstaklingsbundin og ákveðin af þeim lækni sem meðhöndlar sjúklinginn. Algeng meðferðarmörk (lággildi (e. trough levels)) eftir líffæraflutninga eru á bilinu 3-15 ng/mL, háð m.a. líffæri, hve langt er liðið frá aðgerð (líffæra flutningi) og hvor önnur lyf séu gefin samhliða.
Hide details for HeimildirHeimildir
    Elecsys Tacrolimus, Cobas 2022-11, V 6, Roche Diagnostics.
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition. Elsevier Saunders, 2017.
    The Pharmacological Basis of Therapeutics, Goodman and Gilman. Eleventh Edition. McGrawHill. 2006.

Ritstjórn

Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Guðmundur Sigþórsson

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Ísleifur Ólafsson

Útgefandi

Ingunn Þorsteinsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 03/08/2011 hefur verið lesið 4683 sinnum