../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-123
Útg.dags.: 08/06/2024
Útgáfa: 4.0
2.02.01.01 Dabigatran
Hide details for Rannsóknir -  AlmenntRannsóknir - Almennt
    Verð: Sjá Gjaldskrá
    Pöntunarkóði í Flexlab: DABIG
    Grunnatriði rannsóknar: Dabigatran er blóðþynningarlyf sem hefur bein áhrif á storkuþátt IIa (Thrombin). Dabigatran er virka efnið í dabigatran etexilate sem framleitt er í töfluformi undir nafninu Pradaxa, Pradax og Prazaxa.
Hide details for Sýnataka, sending og geymslaSýnataka, sending og geymsla
    Gerð og magn sýnis:
    Athugið að merkja ætíð hvenær sýni er tekið miðað við inntöku lyfins.
    Blóð tekið í storkuprófsglas sem inniheldur 3,2% natríum sítrat.
    Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
    Ath: Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki að kreppa og rétta úr hnefa.

    Sýnaglas skilið niður í skilvindu í 10 mín (2000g). Mælingin er gerð á plasma. Plasmað tekið frá innan 30 mínútna.
    Mælingin er gerð á storkurannsókn á Hringbraut, aðeins á dagvinnutíma.
    Mælingin skal gerð innan 4 klst frá blóðtöku.

    Plasma geymist 4 klst við 20±5°C
    Plasma geymist fryst við - 70°C.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
    Meðferðargildi dabigatrans til viðmiðunar:

    59-88 ng/ml eru líkleg ideal lágþéttnimeðferðargildi

    Eftirfarandi niðurstöður hafa fengist hjá sjúklingum á dabigatran:

    Dabigatran etexilate 150 mg tvisvar á dag:
    Háþéttni (peak) 1-3 klst eftir inntöku 76-409 ng/mL
    Lágþéttni (trough) rétt fyrir inntöku 40-215 ng/mL

    Dabigatran etexilate 110 mg tvisvar á dag:
    Háþéttni (peak) 1-3 klst eftir inntöku 53-295 ng/mL
    Lágþéttni (trough) rétt fyrir inntöku 28-155 ng/mL
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Svar: Niðurstöður gefnar upp í ng/ml. Ef svar er mjög lágt þá er gefið upp <32 ng/ml.

    Túlkun
    Hækkun: Vaxandi líkur á blæðingum
    Lækkun: Minnkuð segavörn
Hide details for HeimildirHeimildir

Ritstjórn

Kristín Ása Einarsdóttir
Loic Jacky Raymond M Letertre
Páll Torfi Önundarson

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Páll Torfi Önundarson

Útgefandi

Sigrún H Pétursdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 03/31/2014 hefur verið lesið 937 sinnum