../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmein-187
Útg.dags.: 05/31/2024
Útgáfa: 1.0
2.02.02.01 Vökvi úr auga
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Frumurannsókn - augnvökvi

Markmið rannsóknar: Smásjárskoðun á augnvökva og sjúkdómsgreining.

Pöntun: Beiðni um frumurannsókn / Rafræn beiðni
Sjá skjal 
Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna

Verð: Sjá Gjaldskrá

Mögulegar viðbótarrannsóknir: Cellblock fyrir mótefnalitanir, sérlitanir og sameindameinafræðilegar rannsóknir.
Hide details for SýnatakaSýnataka
Ílát og áhöld: Glas með þéttum tappa.
Ílát merkt á viðeigandi hátt, sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna


Gerð og magn sýnis:
Augnvökvi 0,5-1 ml. Sent ferskt samstundis.
Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla
Merking, frágangur og sending sýna og beiðna
Sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Geymsla ef bið verður á sendingu:
Sendist samstundis. Ef grunur um eitlakrabbamein skal senda sér sýni í frumuflæðisjá.

Flutningskröfur:
Sýni skal senda strax til meinafræðideildar. Ef töf verður á sendingu skal geyma sýni í kæli.
Hide details for SvartímiSvartími
Svartími er skilgreindur sem fjöldi virkra daga frá því að sýnið er móttekið á rannsóknastofunni og þar til staðfest svar er birt í Heilsugátt.
Svartími: 2 dagar
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Rannsóknarsvar er birt í Heilsugátt og sendar beiðandi lækni skriflega sé viðkomandi utan hennar.
Í sumum tilfellum er viðbótarsvar sent út eftir að rannsóknarsvar hefur verið gefið út.
Ekki er sent út afrit af svarið innan Landspítalans. Hægt er að óska eftir afriti hjá riturum meinafræðideildar í síma 543-8355
Rannsóknarsvar eru í þremur hlutum: lýsing, smásjárskoðun og frumugreining.


Ritstjórn

Ingibjörg Guðmundsdóttir - ingibgud
Jurate Ásmundsson - juratea
Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Jón G Jónasson

Útgefandi

Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 05/30/2024 hefur verið lesið 104 sinnum