../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-106
Útg.dags.: 01/06/2015
Útgáfa: 2.0
2.02.05.04.101 Só útlimir
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar:
Segulómun útlimir, stoðkerfi, liðir.
Samheiti:
MRI bone, musculoskeletal, skelet.
Pöntun:
Röntgensvör
, sjá
leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu
.
Ábendingar:
Áverkar, bólgur, æxli, sýking o.fl.
Frábendingar
:
Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, VP - shunt , raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.
Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsóknir á þunguðum konum eru aðeins framkvæmdar þegar brýn nauðsyn þykir.
Athugið:
Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli.
Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur:
Enginn undirbúningur er fyrir þessa rannsókn
Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi töflu (Dormicum 7,5 mg) og þurfa þeir að mæta 30 mínútur fyrir rannsókn. Ekki er æskilegt að keyra eftir inntöku róandi lyfs.
Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
Velkomið er að hafa aðstandenda með sér.
Mikilvægt er að mæta í rannsókn á réttum tíma, ef mætt er eftir að rannsóknartími hefst getum við ekki lofað að rannsókn verði gerð en gefum þá nýjan tíma.
Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista með
spurningum
áður en rannsókn hefst
.
Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.
Aðferð:
Í sumum tilfellum er gefið skuggaefni,
omniscan
í æð er þá settur upp æðaleggur, oftast í handlegg.
Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, sem síðan er færður inn í segulómtækið.
Spóla (loftnet) er sett yfir það svæði sem mynda á.
Vegna hávaða í tæki eru heyrnartól sett yfir eyru og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
Tímalengd:
30 - 60 mínútur
Eftirmeðferð:
Engin
Niðurstöður
Niðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt.
Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
Heimildir
Heimildir
MR safety
Selectional Anatomy 2
Ritstjórn
Alda Steingrímsdóttir
Aðalheiður Jónsdóttir
Halldóra Sigrún Guðmannsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Pétur Hannesson
Útgefandi
Upp »