../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-094
Útg.dags.: 12/18/2014
Útgáfa: 2.0
2.02.05.02.01 Bláæðarannsókn
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Bláæðarannsókn á fótlegg eða handlegg.
Samheiti: Phlebographia
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Blóðtappi
Frábendingar: Skuggaefnis ofnæmi
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd. Upplýsingar um serum kreatínin má finna á innraneti LSH, sjá Heilsugátt. Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur eitthvert af eftirtöldum sykursýkislyfjum: Glucophage, Glucovance eða Avandmet, sem öll innihalda Metformin, skal hætta töku þess rannsóknardag og 48 klst. eftir rannsóknina. Ef gefa þarf skuggaefni í bráðarannsókn skal hætta notkun á Metformin lyfja 48 klst. eftir rannsókn og endurtaka serum kreatínin mælingu.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á myndgreiningardeild tveimur dögum fyrir rannsókn.
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur: Á röntgendeild er heitur bakstur er settur á stungustað.

    Aðferð: Við myndgreiningarannsókn af bláæðum er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun. Settur er æðaleggur í bláæð á handlegg eða fótlegg sem rannsaka á. Skuggaefni er sprautað í bláæðakerfið og myndir teknar í skyggningu. Rannsókn er framkvæmt af röntgenlækni með aðstoð geislafræðings.

    Tímalengd: 30 mín.

    Eftirmeðferð: Engin.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir á innri vef.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Soffía G Þorsteinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Pétur Hannesson

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 10/31/2011 hefur verið lesið 2406 sinnum