../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-098
Útg.dags.: 12/09/2021
Útgáfa: 5.0
2.02.03.01.01 Kalíum í sólarhringsþvagi
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Mæling á sólarhringsútskilnaði á kalíum í þvagi er notuð til að rannsaka kalíumjafnvægi líkamans. Þvagútskilnaður kalíum endurspeglar fyrst og fremst heildarinntöku þess en sólarhringsútskilnaður er yfirleitt um það bil 90% af sólarhringsinntöku. Afgangurinn skilst að mestu út með hægðum. Útskilnaður kalíums er mun minni um nætur eða um það bil 1/5 af útskilnaði yfir daginn.
Rannsóknin er stundum notuð með mælingu á sólarhringsútskilnaði natríum í þvagi þegar meta á saltjafnvægi við meðferð með þvagræsilyfum.
Mælingin er gerð með jónasértækum rafskautum (ionspecific electrodes, ISE).
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sólarhringsþvag:
Sólarhringsþvagi er safnað samkvæmt leiðbeiningum rannsóknastofunnar. Magn mælt og 5 - 10 ml sendir til rannsóknar ásamt upplýsingum um þvagmagn.
Geymist 2 v í kæli.
Sýni má senda við stofuhita.
Mæling er gerð alla daga vikunnar.
Spot þvag.
5-10 ml af þvagi
Geymist 2 v í kæli
Sýni má senda við stofuhita.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
Sólarhringsþvag:
25 - 125 mmol/24 klst. Er mjög háð kalíuminntöku.
Spot þvag:
Engin sérstök viðmiðunarmörk
Niðurstöður
Niðurstöður
Túlkun
Hækkun:
Aukinn útskilnaður sést þegar kalíum hækkar í plasma vegna tilfærslu frá frumum, svo sem við acidosis og hemolysis. Einnig við sjúkdóma í píplum nýrna og við langvinnan glomerulonephritis (salt - losing nephritis). Aukinn útskilnaður sést einnig við meðferð með þvagræsilyfjum, osmotiska diuresis og aukna myndun (eða gjöf) kortisóls og aldósteróns.
Lækkun
: Minnkaður úrskilnaður sést þegar plasma kalíum lækkar vegna tilfærslu á kalíum inn í frumur. Við lága neyslu kalíum (kalíumskortur í fæðu) getur útskilnaður verið aðeins 5 - 20 mmol á sólarhring.
Heimildir
Heimildir
Method Sheet ISE indirect Na-K-Cl , REF10825441, V1.0. Roche Diagnostics, 2018-11.
Laurells Klinisk kemi í praktisk medicin. Studentlitteratur, Lund, Svíþjóð, 2012; síða 69-79.
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fourth Edition. Elsevier Saunders, 2006.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ísleifur Ólafsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »